Ung vinstri græn
Fréttasafn

Sveitarstjórnakosningar

Eins og flestum ætti að vera kunnugt fara sveitarstjórnakosningar fram 29. maí 2010. Á flestum stöðum opna kjörstaðir klukkan 09:00 og loka klukkan 22:00. Allar upplýsingar um kjörstaði er að finna á vefnum www.kosning.is.

Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur alla til að líta við í kosningakaffi VG og í kosningavökur flokksins sem haldnar verða um land allt. Kosningakaffi og -vökur flokksins verða sem hér segir:

Akureyri:
Kosningakaffi í gamla Alþýðuhúsinu (Pengs) kl.  12-17 og kosningavaka á sama stað kl. 21.

Akranes:
Kosningakaffi Stillholti 16-18 kl. 10 og fram eftir degi, hið víðfræga hlaðborð kl. 15. Kosningavaka á sama stað kl. 22.
 
Árborg:
Kosningakaffi frá hádegi í Gömlu Ljósheimum að Austurvegi 28  og kosningavaka á sama stað.

Borgarbyggð:
Kosningakaffi í Gamla kaupfélagshúsinu að Egilsgötu 11 kl. 9 og kosningavaka á sama stað.

Grindavík:
Kosningasúpa að þýskum sið í Hafnargötu 7a, Mamma Mía kl. 11-21.
 
Hafnarfjörður:
Kosningakaffi í Strandgötu 11 kl. 10-22 og kosningavaka á sama stað.

Höfn:
Kosningakaffi að Bugðuleiru 6 kl. 10-22. Kosningavaka á Víkinni – 18 ára aldurstakmark.
 
Ísafjörður:
Kosningakaffi Í-listans verður í Edinborgarhúsinu frá kl. 13.
 
Kópavogur:
Kosningakaffi í Hamraborg 1-3 kl. 10-18 og kosningavaka á sama stað kl. 21.
 
Mosfellsbær:
Kosningakaffi í Krónuhúsinu frá kl. 10 og kosningavaka á Draumakaffi kl. 22.
 
Norðurþing:
Kosningakaffi verður í sal stéttarfélaganna á Húsavík kl. 11 og kosningavaka á sama stað frá kl. 21.

Reykjanesbær:
Kosningakaffi verður í Hafnargötu 36a kl. 11 og kosningavaka á sama stað.

Reykjavík:
Kosningakaffi í Suðurgötu 10 kl. 11-17:30 og kosningavaka á sama stað frá kl. 22
 
Seyðisfjörður:
Kosningakaffi með Hnallþórum o.fl. þjóðlegum og alþjóðlegum kræsingum verður að Norðurgötu 6 kl. 10 og frameftir.

Skagafjörður:
Kosningakaffi verður við Kaupvangstorg kl. 14-18 og kosningavaka á sama stað kl. 20.
Kosningakaffi verður hjá Helgu, Furulundi 4 í  Varmahlíð kl. 14.
Kosningakaffi verður hjá Hörpu og Þorgils, Hátúni 7 á Hofsósi kl. 14-16.
 
Strandabyggð:
Kosningakaffi í félagsheimilinu á Hólmavík kl. 13-18, kosningavaka á Café Riis.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica