Fréttasafn
Fundur UVG á Húsavík
Miðvikudaginn 19. maí næstkomandi standa UVG og UVGA að opnum spjallfundi á Húsavík. Fundurinn fer fram í kosningamiðstöð VG í Norðurþingi, að Neðri vör, og hefst klukkan 20:00. Aðilar úr stjórnum UVG og UVGA munu kynna starf og stefnu ungliðahreyfingarinnar og spjalla við gesti fundarins. Heitt verður á könnunni og eru allir sem áhuga hafa velkomnir að mæta á fundinn.
