Ung vinstri græn
Fréttasafn

Opnun kosningamiðstöðvar UVG

Ung vinstri græn opna dyrnar að kosningamiðstöð sinni næstkomandi fimmtudagskvöld! Miðstöðin er opin frá klukkan 18:00 og er að Suðurgötu 10 í Reykjavík. Dagskrá kvöldsins hefst svo á slaginu 20:00 og er ekki af verri toganum. Elín Eyþórsdóttir stígur á stokk og blúsar fyrir lýðinn og henni á eftir eru stúlkur úr Uppistöðufélaginu með Uglu Egilsdóttur í broddi fylkingar.

Að sjálfsögðu verða léttar guðaveigar til heiðurs Dionysusi á borðum.

Hlökkum til að sjá ykkur öll, rokkuð og róttæk.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica