Ung vinstri græn
Fréttasafn

Fundur um málefni Palestínu

Ung vinstri græn boða til opins fundar um málefni Palestínu laugardaginn 20. mars. Fundurinn fer fram í húsnæði VG að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 13:00.

Nú er rúmlega ár síðan Ísraelski herinn réðst síðast inn á landsvæði Palestínumanna við Gazaströndina með hörmulegum afleiðingum. Á hverjum degi þurfa Palestínumenn að gjalda fyrir ofríki Íslraelsmanna og tíðindi af mannfalli eru algengar. Ísraelar hafa sem kunnugt er byggt múr sem einangrar Palestínumenn, klýfur byggðir þeirra niður og er algjört brot á grundvallarmannréttindum þeirra. Ísraelar halda stöðugt áfram að byggja hús á landsvæði Palestínumanna, síðustu fregnir af slíkri ákvarðanatökum um byggingu 1600 íbúða komu í síðastliðinni viku.

Ung vinstri græn hafa fordæmt stríðsglæpi og mannréttindabrot Ísraelsmanna gagnvart Palestínsku þjóðinni og hafa jafnan hvatt íslensk stjórnvöld til þess að viðurkenna sjálfstæði Palestínu og landamærin frá 1967.

Sveinn Rúnar Hauksson, formaður félagsins Ísland-Palestína, og Anna Tómasdóttir, húkrunarfræði- og málfræðinemi, halda framsögu á fundinum. Þau fara yfir sögu átakanna í Palestínu og fræða gesti fundarins um stöðu mála þar og hvernig hægt sé að leggja Palestínumönnum lið.

Eins og alltaf verður heitt á könnunni og allir áhugasamir velkomnir að mæta.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica