Fréttasafn
Sveitarstjórnarmál rædd í þaula
Ung vinstri græn ásamt UVGH boða til opins fundar um sveitarstjórnarmál miðvikudaginn 24. febrúar klukkan 20:00 á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Nú þegar styttist í kosningar er ekki úr vegi að kynna sér málin á sveitarstjórnarstiginu og vera með á nótunum.
Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi vinstri grænna og varaformaður Sambands íslenskra sveitarfélaga fer yfir stöðuna og miðlar af reynslu sinni. Öllum er frjálst að taka til máls, spyrja og forvitnast.
Heitt á könnunni og öll velkomin!
