Ung vinstri græn
Fréttasafn

Nýliðakvöld í Kópavogi

Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu mun standa fyrir þremur nýliðakvöldum á næstu tveimur vikum. Nýliðakvöld eru hugsuð sem sérstök kynningarkvöld fyrir alla þá sem eru áhugasamir um að taka þátt í starfi UVG með einhverjum hætti en hafa ekki gert það áður. Aðilar úr stjórn UVGH kynna starf og stefnu hreyfingarinnar fyrir fundargestum og svara þeim spurningum sem kunna að vakna. Allt það fólk sem hefur komið sínum sjónarmiðum og hugsjónum á framfæri og tekið þátt í að móta samfélagið á sviði stjórnmálanna byrjaði með einhverjum hætti - nýliðakvöld eru sérstaklega ætluð þeim sem vilja kynnast slíku starfi og stíga sín fyrstu skref.

Nýliðakvöldin verða sem hér segir:
- Mánudagurinn 8. febrúar klukkan 20:00 í Hamraborg í Kópavogi
- Þriðjudagurinn 9. febrúar klukkan 20:00 á Súfistanum í Hafnarfirði (við Strandgötu)
- Fimmtudaginn 18. febrúar í Reykjavík (nánar auglýst síðar)

Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu bjóða alla áhugasama hjartanlega velkomna. Allar frekari upplýsingar veitir Snærós Sindradóttir, formaður UVGH, í síma 661 4411.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica