Ung vinstri græn
Fréttasafn

Fundur með hælisleitendum

Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar um málefni hælisleitenda þriðjudaginn 2. febrúar næstkomandi. Fundurinn fer fram að Suðurgötu 3 í Reykjavík og hefst klukkan 20:30.


Nokkrir hælisleitendur sem eru eða hafa verið búsettir í miðstöð hælisleitenda að Fitjum í Reykjanesbæ munu mæta á fundinn og halda framsögu um upplifun sína af því að búa að Fitjum og stöðu hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi almennt. Þá munu íslenskir aðstandendur þeirra einnig taka til máls.


Stjórn Ungra vinstri grænna hvetur alla þá sem hafa áhuga á að kynnast málefnum hælisleitenda frá þeirra eigin sjónarhorni, beint og milliliðalaust, til að mæta á fundinn enda eru sem fyrr allir hjartanlega velkomnir.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica