Ung vinstri græn
Fréttasafn

Viðurkennum íslenskt táknmál!

Í tilefni af degi íslenskrar tungu mánudaginn 16. nóvember næstkomandi mun stjórn Ungra vinstri grænna boða til fundar um íslenskt táknmál. Fundurinn verður haldinn að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00.

Frummælandi fundarins verður Haukur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri og annar eigenda Táknsmiðjunnar ehf, en hann hefur um langt skeið barist í málefnum þeirra sem tala táknmál. Sjálfur er Haukur heyrnarlaus og mun því flytja framsöguna á táknmáli. Táknmálstúlkar frá túlkaþjónustu Samskiptastöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra túlka á fundinum.

Það hefur um árabil verið krafa Ungra vinstri grænna að táknmál verði viðurkennt sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica