Ung vinstri græn
Fréttasafn

Fundur um málefni flóttamanna

Stjórn Ungra vinstri grænna boðar til fundar um málefni flóttamanna fimmtudaginn 5. nóvember nk. Fundurinn verður haldinn í húsnæði VG að Suðurgötu 3 og hefst klukkan 20:00.

Framsögumenn verða Atli Gíslason, þingmaður, Jóhann Björnsson heimspekingur og Sigríður Víðis Jónsdóttir blaðamaður. Meðal þess sem verður til umræðu er Dyflinarsáttmálinn, staða hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi í dag og stefna og frammistaða íslenskra stjórnvalda í þessum málefnum. Haldnar verða stuttar framsögur og í kjölfarið verða umræður og gefst fundargestum færi á að spyrja framsögumenn spurninga.

Að vanda verður heitt á könnunni og eru öll hjartanlega velkomin.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica