Fréttasafn
Aðalfundur UVG á Akureyri
Ung vinstri græn á Akureyri boða til aðalfundar fimmtudaginn 5. nóvember að brekkugötu 7A á Akureyri.
Á dagksrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, svosem kjör stjórnar og lagabreytingar. Óskað er eftir framboðum í stjórn og tillögum að lagabreytingum og skulu þær sendar á netfangið uvgakureyri@gmail.com. Þá mun fráfarandi stjórn gera grein fyrir störfum sínum undanfarið starfsár auk þess fram fer almenn stjórnmálaumræða og ályktanir afgreiddar.
Dagskrá
- Fundur settur.
- Skýrsla stjórnar
- Önnur mál.
- Kosið um lagabreytingartillögur.
- Afgreiðsla ályktanna.
- Kosning stjórnar.
- Almenn Stjórnmálaumræða og starfið framundan
