Ung vinstri græn
Fréttasafn

Undirbúnigskvöld fyrir landsfund

Landsfundur Ungra vinstri grænna fer fram helgina 25.-27. september 2009 á
Hvolnum á Hvolsvelli. Ung vinstri græn standa fyrir undirbúningskvöldi
fyrir landsfundinn næstkomandi miðvikudagskvöld, 23. september, að
Suðurgötu 3. Fundurinn hefst klukkan 20:00.

Á fundinum mun Auður Lilja Erlingsdóttir kynna reglur um fundarsköp, en
mikilvægt er að landsfundarfulltrúar séu vel að sér í fundarsköpum til að
geta tekið virkan þátt í fundarhöldunum.

Þá munu fulltrúar stjórnar Ungra vinstri grænna að kynna þær ályktanir og
lagabreytingar sem stjórn UVG leggur fram á landsfundinum. Hægt verður að
skrá sig á landsfundinn á staðnum, en skráning fer einnig fram í gegnum
https://webmail.hi.is/sqmail/src/compose.php?send_to=uvg%40vinstri.is eða síma 8475601 (Steinunn). Stjórnarmeðlimir UVG verða auk
þess til skrafs og ráðagerða ef einhverjar spurningar vakna um hvaðeina
sem viðkemur landsfundinum.

Ung vinstri græn hvetja ungliða sem ætla sér að mæta á landsfundinn til að
hita upp fyrir helgina með því að mæta á þennan undirbúningsfund, en tekið
skal fram að undirbúningsfundurinn er opinn öllum áhugasömum sem vilja
hressa uppá fundarskapaþekkingu sína, kynna sér áherslumál UVG eða bara
rabba um pólitík yfir kaffibolla.

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica