Fréttasafn
Hreyfimyndasýning: Yfirtakan
Þriðjudagskvöldið 21. apríl mun hreyfimyndahreyfing Ungra vinstri grænna sýna heimildamyndina The Take frá árinu 2004.
Um myndina
Atvinnulausir argentískir verkamenn taka yfir yfirgefna verksmiðju sem er engum til gagns og koma henni af stað aftur. Þegar hún er komin í gang fá „eigendur“ verksmiðjunnar aftur áhuga á henni og vilja að verkamennirnir yfirgefi hana. Myndinn fjallar um baráttu verkamannanna fyrir yfirráðum sínum yfir og störfum sínum í verksmiðjunni .
Myndinni er leikstýrt af Avi Lewis og hún er skrifuð af kanadísku blaðakonunni og rithöfundinum Naomi Klein, sem frægust er fyrir bækurnar
No Logo og The Shock Doctrine.
Staður:
- Kosningamiðstöð Ungra vinstri grænna, Suðurgötu 3 í Reykjavík
Stund:
- Miðvikudagskvöldið 21. apríl klukkan 20:00.

