Fréttasafn
Kvöldvaka UVG í Borgarbyggð
Nk. fimmtudagskvöld, 26. mars kl. 20:30, verður kvöldvaka Ungra vinstri grænna í Borgarbyggð í kosningamiðstöðinni Brákarbraut 8. Steinunn Rögnvaldsdóttir, formaður UVG, flytur ávarp. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir flytur nokkur lög við undirspil Þorvalds Inga Árnasonar. Pétur Björnsson leikur á fiðlu.
Frambjóðendur í þriðja og fjórða sæti framboðslistans, þau Ásmundur Einar Daðason og Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir, spjalla við fundargesti.
