Ung vinstri græn
Fréttasafn

Hugmyndasmiðja UVG

Ung vinstri græn standa fyrir opinni hugmyndasmiðju um áherslur og aðferðir í kosningabaráttunni miðvikudaginn 25. mars nk. kl. 20:00 að Suðurgötu 3. M.a. verða drög að kosningaáherslum Ungra vinstri grænna rædd, og leitað eftir hugmyndum og áherslum viðstaddra fyrir kosningabaráttuna. Auk þess verður barmmerkjasmiðja þar sem fólki gefst tækifæri til að koma með hugmyndir að barmmerkjum fyrir kosningabaráttu UVG, og framleiða sín eigin barmmerki á staðnum.

Ung vinstri græn hvetja áhugasama félaga, gamla sem nýja, til að mæta og taka virkan þátt í mikilvægustu kosningabaráttu frá því að fullveldisbaráttan var háð.

Vinstristjórn í vor!

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica