Fréttasafn
Fögnuður vegna nýrrar heimasíðu
Ung vinstri græn bjóða öllum félögum sínum og velunnurum til teitis í Friðarhúsi á horni Njálsgötu og Snorrabrautar kl. 21:00 fimmtudagskvöldið 19. mars. Ung vinstri græn hyggjast fagna nýrri og glæsilegri heimasíðu hreyfingarinnar, www.vinstri.is, sem að fór í loftið í dag. Auk þess ætla ungliðar að hita upp fyrir landsfund Vinstri grænna sem hefst daginn eftir, föstudaginn 20. mars.
Við hvetjum nýja félaga sem gamla til að gleðjast með okkur í Friðarhúsi yfir því sem gott er, mitt í öllu volæðinu. Baráttan er að hefjast, þjöppum okkur saman! Allir í Friðarhúsið fimmtudagskvöldið 19. mars!
