Ungir frambjóðendur kynnna sig
Ung vinstri græn minna á opinn fund Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu að Suðurgötu 3 kl. 19:00 í kvöld. Á fundinum munu ungliðar (30 ára og yngri) sem bjóða sig fram í forvali VG í Reykjavík kynna sig og ræða við fundargesti.
Ungliðar í forvali VG í Reykjavík, eru:
Andrés Ingi Jónsson (29 ára)
Auður Lilja Erlingsdóttr (29 ára)
Brynja Björg Halldórsdóttir (18 ára)
Hörður Þórisson (21 árs)
Kristján Ketill Stefánsson (30 ára)
Hver frambjóðandi heldur stutta framsögu í 5-10 mínútur og svo verða spurningar og umræður.
Rétt er að taka fram að þessi fundur er líka nýliðafundur enda kjörið að koma inn í starfið rétt fyrir forval. Farið verður stuttlega í stefnu UVG og starfið fyrir nýliða.
Vakin er athygli á að Ung vinstri græn á höfðuborgarsvæðinu stefna að því að halda svipaðan fund í Kraganum fyrir forvalið þar.
Vinstri græn standa þessar vikur fyrir forvali í öllum kjördæmum til að velja fulltrúa á lista flokksins fyrir næstu Alþingiskosningar. Kosningu er lokið í Suðurkjördæmi og í Norðausturkjördæmi og ættu niðurstöður að birtast bráðlega. Í Reykjavík fer kjörfundur fram næstkomandi laugardag, 7. mars, en kjörskrá er opin út 6. mars (til miðnættis). Í Norðvesturkjördæmi er póstkosning, kjörskrá hefur verið lokað og atkvæðaseðlar skulu póstlagðir ekki síðar en 10. mars. Í Suðvesturkjördæmi verður kosið 14. mars og kosningarétt eiga allir þeir sem eru skráðir í svæðisfélög í Suðvesturkjördæmi fyrir kjördag.
Hægt er að kynna sér frambjóðendur á heimasíðu Vinstri grænna, vg.is, en þar birtast frambjóðendabæklingar fyrir hvert kjördæmi á netinu. Nú síðast birtist frambjóðendabæklingur fyrir Norðvesturkjördæmi og var sérstaklega ánægjulegt að sjá að af 22 frambjóðendum eru 7 ungliðar og 2 til viðbótar rétt rúmlega 30 ára.
Ung vinstri græn vilja enn og aftur hvetja ungliða til að veita ungliðum í framboði brautargengi. Markmiðið er að fá fleiri góða fulltrúa okkar kynslóðar á þing í vor og að framboðslistar VG endurspegli breiddina sem er í flokknum. Þess má geta að meðalaaldur núverandi þingmanna VG er um 54 ár, á meðan um þriðjungur fylgismanna hreyfingarinnar er 30 ára og yngri.
Við viljum gott fólk á öllum aldri í framboð – svo kjósum þannig!
