UVGH kynnir ungliða í framboði í Reykjavík
Næstkomandi þriðjudagskvöld, 3. mars, stendur stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fyrir opnum fundi að Suðurgötu 3 í Reykjavík þar sem ungliðum (30 ára og yngri) sem bjóða sig fram í forvali VG í Reykjavíkurkjördæmunum gefst kostur á að kynna sig. Fundurinn hefst klukkan 19:00.
Ungliðar í forvali VG í Reykjavík, eru:
Andrés Ingi Jónsson (29 ára)
Auður Lilja Erlingsdóttir (29 ára)
Brynja Björg Halldórsdóttir (18 ára)
Hörður Þórisson (21 árs)
Kristján Ketill Stefánsson (30 ára)
Hver frambjóðandi heldur stutta framsögu í 5-10 mínútur og svo verða spurningar og umræður
*Rétt er að taka fram að þessi fundur er líka nýliðafundur enda kjörið að koma inn í starfið rétt fyrir forval. Farið verður stuttlega í stefnu UVG og starfið fyrir nýliða.*
Heitt á könnunni og með því. Allir velkomnir.
