Fréttasafn
Ung vinstri græn á Akureyri kynna unga frambjóðendur
Föstudaginn 27. febrúar standa Ung vinstri græn á Akureyri fyrir opnum fundi að að Geislagötu 5 ( plaza) til að kynna unga frambjóðendur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í forvali VG í Norð-Austurkjördæmi. Ung vinstri græn hvetja ungliða í Norð-Austurkjördæmi til að mæta og kynna sér sitt fólk. Markmiðið er að fá fleiri góða fulltrúa okkar kynslóðar á þing í vor og að framboðslistar VG endurspegli breiddina sem er í flokknum - við viljum gott fólk á öllum aldri í framboð!
Öll velkomin!
