Ung vinstri græn
Fréttasafn

Hvar á að skera niður?

Seinni fundur Ungra vinstri grænna af tveimur um forgangsröðun í samfélaginu verður haldinn laugardaginn 21. febrúar kl. 12:30 á Suðurgötu 3 í Reykjavík. Finnur Dellsén aðstoðarmaður formanns VG og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir varaþingmaður flytja erindi. Jan Eric Jessen varaformaður UVG stýrir fundinum.

Finnur talar um þá sparnaðaráætlun sem Ung vinstri græn samþykktu á landsfundi síðastliðinn október og Guðfríður Lilja ræðir þann niðurskurð sem hefur farið fram af hálfu stjórnvalda á landsvísu. Eftir erindin verður opnað fyrir spurningar.

Heitt á könnunni!

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica