Ung vinstri græn
Ung vinstri græn á Suðurlandi

Ung vinstri græn á Suðurlandi

Stjórn

  • Daníel Haukur Arnarsson (formaður)
  • Andrés Rúnar Ingason (varaformaður)
  • Kristín Lilja Björnsdóttir (ritari)
  • Elín Birna Vigfúsdóttir (meðstjórnandi)
  • Kári Úlfsson (meðstjórnandi)
  • Óli Valur Pétursson (meðstjórnandi)
  • Árný Fjóla Ásmundardóttir (varamaður)
  • Sigurður Daðason (varamaður)
  • Sóley Linda Egilsdóttir (varamaður) 


Lög félags Ungra vinstri grænna á Suðurlandi



1. Nafn og aðsetur

Félagið heitir Ung vinstri græn á Suðurlandi. Heimili þess og varnarþing er á Selfossi.

2. Markmið

Markmið félagsins er að vera umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á Suðurlandi og að miðla upplýsingum um starf og stefnu flokksins til ungs fólks á svæðinu.

3. Aðild

Aðild að félaginu eiga þeir félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði sem eru 30 ára og yngri og eru búsettir á Suðurlandi eða kjósa að starfa með félaginu.

4. Aðalfundur

Aðalfundur fer með æðsta vald í störfum félagsins. Aðalfund skal halda árlega að hausti og er opinn öllum félögum. Aðalfundur telst löglegur ef boðað er til hans með minnst viku fyrirvara.

5. Stjórn

Aðalfundur kýs félaginu stjórn. Stjórnin skal skipuð fimm einstaklingum og fjórum til vara. Stjórn skiptir með sér verkum og stýrir starfi félagsins milli aðalfunda.

6. Fjárreiður

Stjórn félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.

7. Gildistaka

Lög þessi öðlast gildi á stofnfundi 18. apríl árið 2007 sem jafnframt er fyrsti aðalfundur félagsins.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica