Stjórn
Sjórn
- Þormóður Logi Björnsson (formaður)
- Hallvarður Jóhannes Guðmundsson
- Daði Hreinsson Pagan
- Einar Gunnarsson (varamaður)
- Hlynur Freyr Sigurhansson (varamaður)
Lög félags Ungra vinstri grænna á Reykjanesi
1. Nafn og aðsetur.
Félagið heitir Ung vinstri græn á Reykjanesi. Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjanesbæ.
2. Markmið.
Markmið félagsins er að vera umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á Reykjanesi. Einnig að miðla upplýsingum um starf og stefnu flokksins til ungs fólks.
3. Aðild.
Aðild að félaginu eiga þeir félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði sem eru 30 ára og yngri og eru búsettir á Reykjanesi eða kjósa að starfa með félaginu.
4. Aðalfundur.
Aðalfundur fer með æðsta vald í störfum félagsins. Aðalfund skal halda árlega að hausti og er opinn öllum félögum. Aðalfundur telst löglegur ef boðað er til hans með viku fyrirvara.
5. Stjórn.
Aðalfundur kýs félaginu stjórn sem stýrir starfi þess milli aðalfunda. Kjósa skal formann sérstaklega. Því næst skal kjósa 2 meðstjórnendur sem skipta með sér verkum í varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda. Að auki skal kjósa tvo varamenn. Stjórn félagsins ber að sjá til þess að skipuð sé kjörstjórn sem að auglýsir eftir framboðum til stjórnar. Kjörstjórn hefur þó jafnframt leyfi til að gera að tillögu sinni uppstillingu í stjórn og skal þá hafa til hliðsjónar framkomin framboð.
6. Fjárreiður.
Stjórn félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.
7. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi á stofnfundi 11. apríl árið 2008 sem jafnframt er fyrsti aðalfundur samtakanna.
