Ung vinstri græn á Hornafirði
Stjórn UVG á Hornafirði:
- Sólveig Morávek (formaður)
- Jóhann Helgi Stefánsson (ritari)
- Andri Indriðason (gjaldkeri)
- Samúel Jóhannsson (varamaður)
- Sindri Snær Þorsteinsson (varamaður)
Hægt er að hafa samband við stjórn félagsins í netfanginu uvghorn@gmail.com
Lög félags Ungra vinstri grænna á Hornafirði
1. Nafn og aðseturFélagið heitir Ung vinstri græn á Hornafirði. Heimili þess og varnarþing er á Höfn í Hornafirði.
2. Markmið
Markmið félagsins er að vera umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á Hornafirði og að miðla upplýsingum um starf og stefnu flokksins til ungs fólks á svæðinu.
3. Aðild
Aðild að félaginu eiga þeir félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði sem eru 30 ára og yngri og eru búsettir á Hornafirði eða kjósa að starfa með félaginu.
4. Aðalfundur
Aðalfundur fer með æðsta vald í störfum félagsins. Aðalfund skal halda árlega að hausti og er opinn öllum félögum. Aðalfundur telst löglegur efboðað er til hans með minnst viku fyrirvara.
5. Stjórn
Aðalfundur kýs félaginu stjórn. Stjórnin skal skipuð þrem einstaklingum og tveim til vara. Stjórn skiptir með sér verkum og stýrir starfi félagsins milli aðalfunda.
6. Fjárreiður
Stjórn félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.
7. Gildistaka
Lög þessi öðlast gildi á stofnfundi 13. apríl árið 2009 sem jafnframt er fyrsti aðalfundur félagsins.
