Ung vinstri græn
Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu

Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu

Stjórn

  • Gísli Garðarsson (formaður)
  • Eva Hrund Hlynsdóttir (varaformaður)
  • Tinna Ingólfsdóttir
  • Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir
  • Helgi Hrafn Ólafsson
  • Bjarni Þóroddsson
  • Una Hildardóttir
  • Jónas Roy Bjarnason

Netfang stjórnar er uvg@vinstri.is


Lög Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu (UVGh)

1. Nafn og aðsetur

Félagið heitir Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.


2. Markmið

Markmið félagsins er að vera umræðu- og samstarfsvettvangur Ungra vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður auk Suðvesturkjördæmis utan Kjósarhrepps sem tilheyrir Ungum vinstri grænum á Vesturlandi. Einnig að miðla upplýsingum um starf og stefnu hreyfingarinnar til ungs fólks.

3. Aðild

Aðild að félaginu eiga þeir félagar í Ungum vinstri grænum sem eru búsettir í  Reykjavíkurkjördæmum norður og suður auk Suðvesturkjördæmis að Kjósarhreppi undanskildum eða kjósa að starfa með félaginu.

4. Aðalfundur

Aðalfundur fer með æðsta vald í störfum félagsins. Aðalfund skal halda árlega að hausti og er opinn öllum félögum. Aðalfundur telst löglegur ef boðað er til hans með viku fyrirvara.

5. Stjórn

Aðalfundur kýs félaginu stjórn sem stýrir starfi þess milli aðalfunda. Stjórn skal skipuð fimm félögum og þremur  til vara sem kosnir eru á aðalfundi. Varamenn taka sæti í forföllum aðalmanna í þeirri röð sem þau eru kjörin. Embætti stjórnar eru: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri auk meðstjórnenda. Stjórn félagsins ber að sjá til þess að skipuð sé kjörstjórn sem að auglýsir eftir framboðum til stjórnar . Leitast skal við að hafa fulltrúa úr öllum hluteigandi sveitafélögum í stjórn.


6. Kosning og fyrirkomulag stjórnar
Stjórn Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu er kjörin undir lok aðalfundar á hverju ári og situr til næsta aðalfundar félagsins. Fyrst skal formaður kosinn beinni kosningu. Að því loknu skal kjósa fjögurra manna stjórn sem á fyrsta stjórnarfundi skiptir með sér verkum í samræmi við embætti hennar. Að kosningu aðalmanna aflokinni skal ganga til kjörs um þrjá varamenn stjórnarinnar. Leyfilegt skal að
gefa kost á sér til varamanns allt þangað til gengið er til kjörs um þá. Stjórn skal einnig heimilt að skipa áheyrnarfulltrúa á fundum sínum þyki henni ástæða til. Áheyrnarfulltrúar hafa málfrelsis- og tillögurétt. Stjórn getur boðað til auka aðalfundar þyki henni ástæða til og skal hann boðaður með minnst sjö sólarhringa fyrirvara.

7. Fjárreiður

Stjórn félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.

8. Slit félags

Ákvörðun um slit félags skal tekin á aðalfundi með auknum meirihluta sem nemur 2/3 fundarmanna og renna eignir þess til Ungra vinstri grænna á landsvísu.

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica