Ung vinstri græn
Ung vinstri græn á Akureyri

Ung vinstri græn á Akureyri

Stjórn

  • Bjarni Þóroddsson (formaður) 
  • Sindi Geir Óskarsson (varaformaður)
  • Tinna Ingólfsdóttir (gjaldkeri)
  • Klara Mist Pálsdóttir (ritari)
  • Bjarki Símonarson (meðstjórnandi)
  • Bjarki Þórðarson (varamaður)


Lög Ungra vinstri grænna á Akureyri og nágrenni

1. Nafn og aðsetur

Félagið heitir Ung vinstri græn á Akureyri og nágrenni. Heimili þeirra og varnarþing er á Akureyri.


2. Markmið

Markmið félagsins er að vera umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði á Akureyri og nágrenni. Einnig að miðla upplýsingum um starf og stefnu flokksins til ungs fólks.

3. Aðild

Aðild að félaginu eiga þeir félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði sem eru 30 ára og yngri og eru búsettir á Akureyri og nágrenni eða kjósa að starfa með félaginu.

4. Aðalfundur

Aðalfundur fer með æðsta vald í störfum félagsins. Aðalfund skal halda árlega að hausti og er opinn öllum félögum. Aðalfundur telst löglegur ef boðað er til hans með viku fyrirvara.

5. Stjórn

Aðalfundur kýs félaginu stjórn sem stýrir starfi þess milli aðalfunda. Stjórn skal skipuð fimm félögum og einum til vara sem kosnir eru á aðalfundi. Embætti stjórnar eru: formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri auk meðstjórnanda. Formaður skal kosinn beinni kosningu á aðalfundi en stjórn skiptir með sér verkum að öðru leyti. Stjórn félagsins ber að sjá til þess að skipuð sé kjörstjórn sem að auglýsir eftir framboðum til stjórnar.

6. Fjárreiður

Stjórn félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.

7. Slit félags

Ákvörðun um slit félags skal tekin á aðalfundi með auknum meirihluta sem nemur 2/3 fundarmanna og renna eignir þess til Ungra vinstri grænna á landsvísu“.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica