Ung vinstri græn
Lög Ungra vinstri grænna

Lög Ungra vinstri grænna

1. Nafn og aðsetur

Hreyfingin heitir Ung vinstri græn. Heimili hennar og varnarþing er í Reykjavík.

2. Markmið

Markmið hreyfingarinnar er að vera umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Einnig að miðla upplýsingum um starf og stefnu flokksins til ungs fólks. Jafnframt skal hreyfingin gæta hagsmuna félaga sinna innan Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs eftir því sem að þurfa þykir. Hreyfingin skal vinna að fullu jafnrétti kynjanna. Í því skyni skal hreyfingin leitast við að hafa sem jafnast hlutfall kynjanna í hverju því starfi sem að fram fer innan þeirra, s.s. stjórnum, nefndum og ráðum

3. Aðild

Aðild að hreyfingunni eiga þeir félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði sem eru 30 ára og yngri.

4. Landsfundur

Landsfundur fer með æðsta vald í störfum hreyfingarinnar. Landsfund skal halda árlega að hausti og er hann opinn öllum félögum. Landsfundur telst löglegur ef boðað er til hans með skriflegri tilkynningu til allra félaga með minnst tveggja vikna fyrirvara. Landsfundur samþykkir fundarsköp og skal fundinum stjórnað samkvæmt þeim. Landsfundarfulltrúar geta borið fram tillögur um hvert það mál sem þeir óska, eins lengi og slíkt stangast ekki á við lög samtakanna. Skal fundurinn taka afstöðu til allra mála samkvæmt þeim fundarsköpum sem samþykkt hafa verið. Kjörgengi og kosningarétt á landsfundi hafa allir fullgildir félagar. Í öllum málum ræður einfaldur meirihluti. Landsstjórn getur kvatt saman aukalandsfund hvenær sem nauðsyn krefur. Um aukalandsfund gilda að öðru leyti sömu reglur og um landsfund.

5. Stjórn

Landsfundur kýs hreyfingunni stjórn sem stýrir starfi hreyfingarinnar milli landfunda. Formaður, varaformaður, gjaldkeri og ritari skulu kosnir sérstakri kosningu. Að auki skal kjósa fimm meðstjórnendur og þrjá til vara. Fundir Landsstjórnar eru lögmætir þegar að meirihluti fulltrúa eru viðstaddir. Landsstjórn skal funda mánaðarlega hið minnsta nema sérstakar aðstæður hamli því.

6. Aðildarfélög

Vinna skal að framgangi Vinstrihreyfingarinnar-Græns framboðs og stefnumiða hreyfingarinnar á landsvísu. Í því skyni skal landsstjórn hafa forgöngu um að svæðisfélög séu stofnuð sem víðast um landið. Félagssvæði svæðisfélags skal taka til eins sveitarfélags hið minnsta. Eigi skal nema eitt svæðisfélag starfa í hverju sveitarfélagi. Félagar geta einungis átt aðild að einu svæðisfélagi og er þeim í sjálfsvald sett hvaða svæðisfélagi þeir tilheyra, óháð búsetu. Svæðisfélög skulu halda aðalfund sinn árlega að hausti og er hann æðsta ákvörðunarvald félagsins. Skulu slíkir fundir boðaðir með minnst sjö sólarhringa fyrirvara, með skriflegri tilkynningu eða símleiðis til allra. Aðalfundur hvers félags skal kjósa stjórn og skal hún vera skipuð þremur einstaklingum að lágmarki. Svæðisfélög skulu setja sér lög og stefnumið í samræmi við lög flokksins. Hverju svæðisfélagi er heimilt að senda einn fulltrúa á fundi landsstjórnar og skal landsstjórn upplýsa svæðisfélög um fundartíma. Sá fulltrúi skal hafa málfrelsi og tillögurétt en eigi atkvæðisrétt.

7. Fjárreiður

Stjórn hreyfingarinnar ber ábyrgð á fjárreiðum þess. Hún skuldbindur félagið gagnvart öðrum aðilum og er undirskrift formanns og gjaldkera nægileg til þess.

8. Aðgengi

Allt starf hreyfingarinnar skal miðast við það að allir félagar geti tekið þátt í því. Því skal þess gætt eftir fremsta megni að allir viðburðir á vegum hreyfingarinnar fari fram á stöðum þar sem að fullt aðgengi er til staðar. Jafnframt skal taka tillit til mismunandi aðstæðna félaga, m.a. hvað varðar táknmálstúlkun og aðra sambærilega þjónustu.

9. Lagabreytingar

Lögum hreyfingarinnar má aðeins breyta á landsfundi. Telst breyting á lögum samþykkt ef hún hlýtur 2/3 hluta greiddra atkvæða á landsfundi. Skulu tillögur til breytinga á lögum, sem aðrir bera fram en landsstjórn, berast landsstjórn eigi síðar en sjö dögum fyrir landsfund

10. Gildistaka

Lög þessi öðlast gildi á stofnfundi 18. nóvember árið 2000 sem jafnframt er fyrsti landsfundur hreyfingarinnar.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica