Ung vinstri græn

Róttæk hreyfing fyrir ungt fólk

Ung vinstri græn er heiti ungliðahreyfingar Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, skammstafað UVG. Þetta er vettvangur þeirra sem eru 30 ára og yngri í VG. Hreyfingin var stofnuð 18. nóvember 2000.

Ung vinstri græn starfa sem umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. UVG kynnir stefnu og starf hreyfingarinnar fyrir ungu fólki, veitir forystu hennar málefnalegt aðhald og gætir hagsmuna ungs fólks innan hennar. Starfsemi UVG er skipulögð af stjórn sem er kosin árlega, og svæðisfélögum sem að starfa víða um landið.

Ung vinstri græn leggja áherslu á náttúruvernd, friðarstefnu og sjálfstæði í alþjóðamálum, kvenfrelsi og félagslegt réttlæti í velferðarsamfélagi. Hreyfingin leggur svo lykiláherslu á að ungt fólk sé haft með í ráðum í allri stefnumótun sem það varðar, og hlustað sé á þeirra sjónarmið.

Meðal þess sem að Ung vinstri græn hafa fyrir stafni er að halda fundi um baráttuefni hreyfingarinnar, álykta um samfélagsleg málefni og koma skoðunum hreyfingarinnar og markmiðum þannig á framfæri í fjölmiðlum og útí umræðuna í samfélaginu, skrifa greinar, halda úti vefsíðunni vinstri.is, gefa út blöð og dreifildi, framleiða eigin barmmerki, standa fyrir kaffihúsakvöldum, vídjókvöldum, tónleikum og partíum, og í stuttu máli standa fyrir fjölbreyttu og skemmtilegu starfi til að höfða til breiðs hóps ungs fólks og vekja áhuga þeirra á vinstripólitík.