Ung vinstri græn
Lýðræði er þátttaka

Lýðræði er þáttaka

Lýðræði snýst um fleira en að fólk fái að kjósa á fjögurra ára fresti og að meirihlutinn fái sínu fram. Án raunverulegrar þátttöku almennings er lýðræðið lítils virði. Í sannkölluðu lýðræði hefur almenningur hins vegar tækifæri á að láta skoðun sína í ljós milliliðalaust og gagnrýna þá sem fara með valdið hverju sinni. Upplýsingagjöf til almennings, rétturinn til að mótmæla, óskert tjáningarfrelsi og fullt félagafrelsi eru meðal forsendna fyrir lýðræðislegu þjóðfélagi.

Útvíkka þarf lýðræðið með því að innfæra lýðræðislega ákvarðanatöku á sem flest svið samfélagsins. Fyrirtæki og stofnanir, hvort sem um er að ræða einkarekna eða opinbera starfsemi, ættu að byggjast á lýðræðislegum ákvörðunum í auknum mæli. Starfsfólk ætti því að hafa mun meira um málefni sinna vinnustaða að segja, á kostnað eigenda ef þörf krefur.

Ennfremur þarf að gæta þess að starfsemi sem nú er undir stjórn lýðræðislega kjörinna fulltrúa færist ekki í hendur aðila sem virða lýðræði að vettugi. Einkavæðing er í eðli sínu tilfærsla valda frá lýðræðislega kjörnum fulltrúm til einkaaðila sem láta gróðavonina eina ráða för. Einkavæðing á því ekki heima í þeim stofnunum og fyrirtækjum sem sýsla með almannahagsmuni og sem lýðræðislegar ákvarðanir ættu að ná til.


Öflugra lýðræði

  • Almenningur hafi rétt til að kalla til þjóðaratkvæðagreiðslu ef visst hlutfall þjóðarinnar óskar eftir því með formlegum hætti.

  • Kosningaaldur verði lækkaður í 16 ár.

  • Haldnar verði „skólakosningar“ samhliða þingkosningum til að efla lýðræðislega umræðu í skólum.

  • Framlög til ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna verði skilin frá framlögum til stjórnmálaflokkanna sjálfra.

 

Þátttaka almennings

  • Fjárframlög til frjálsra félagasamtaka verði stóraukin.

  • Sett verði sérstök lög um lýðræðisleg, friðsöm mótmæli sem taki af allan vafa um rétt mótmælenda til að láta skoðun sína í ljósi.

  • Þátttaka starfsfólks í ákvörðunum innan fyrirtækja verði aukin til muna með lagasetningu og aðkomu verkalýðshreyfinga.

  • Sett verði sérstök lýðræðisskilyrði fyrir sérhverri einkavæðingu ríkisstofnana og –fyrirtækja þannig að tryggt sé að lýðræðislegt aðhald minnki ekki.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica