Ung vinstri græn
Kvenfrelsi í raun

Kvenfrelsi í raun

Ung vinstri græn vilja sjá samfélag þar sem að grundvallarfrelsi og mannréttindi einstaklinga eru skilyrðislaust virt og einstaklingurinn býr ekki við kúgun af neinu tagi. Þess vegna vilja Ung vinstri græn kvenfrelsi, sem felst í því að konur hætti að sæta misrétti vegna kynferðis síns. Karlar hafa í gegnum tíðina fengið forgjöf þegar kemur að félagslegri, efnahagslegri, menningarlegri og stjórnmálalegri stöðu í samfélaginu. Jafnréttisbarátta síðustu ára hefur miðað að því að eyða þessari forgjöf þannig að kynin eigi jafna möguleika á öllum sviðum mannlífsins. Ýmsir ósýnilegir þröskuldar, innbyggðir í það karllæga valdakerfi sem svo lengi fékk að standa óhaggað í vegi fyrir réttmætum völdum og sjálfsákvörðunarrétti kvenna, eru enn til staðar. Kynbundinn launamunur, kynbundið ofbeldi, og sú staðreynd að konur eru miklu færri í valda- og stjórnunarstöðum auk þess sem þær vinna oftar lægra launuð störf, eru einna stærstu dæmin um þessa þröskuldi sem við eigum eftir að losa okkur við. Fyrr verður markmiðinu um kvenfrelsi ekki náð.

Ung vinstri græn líta ekki á það sem vandamál að kynin séu ólík, en hafna þess í stað þeim neikvæðu áhrifum sem því fylgja. Ung vinstri græn hafna skrumskældum heimi öfugsnúinna útlitsstaðla sem fela jafnvel í sér kvalir fyrir bæði kynin sem telja sig þurfa að svelta sig eða gangast undir áhættusamar og sársaukafullar aðgerðir til að uppfylla óraunhæfar útlitskröfur sem eru markaðssettar í fjölmiðlum og auglýsingum. Staðalímyndir sem fela í sér flokkun í kven- og karlhlutverk eru óþolandi og skaðlegar fyrir frelsi einstaklingsins til að lifa lífi sínu laus á þann hátt sem hann/hún kýs helst.

Það eru skýr mannréttindi að geta klætt sig og velja sér lífstíl eins og hver og einn kýs án þess að eiga á hættu að verða fyrir aðkasti eða kynferðisofbeldi. Þegar konum er innrætt að þær eigi að haga sér á ákveðinn hátt eða klæða sig á ákveðinn hátt til að koma í veg fyrir að vera beittar kynferðislegu ofbeldi er verið að leggja ábyrgðina á herðar saklausa aðilanum. Ofbeldismennirnir eiga að bera ábyrgðina einir.

Kynferðisofbeldi birtist m.a. í nauðgunum, sifjaspelli, klámi, vændi, mansali, kynferðislegri áreitni og líkamlegu og andlegu ofbeldi gegn konum og börnum inni á heimilum þeirra. Ung vinstri græn vilja benda á að kynferðisofbeldi á ekkert skylt við kynlíf, heldur er afsprengi sjúklegrar drottnunargirni og valdafíknar gerandans. Ung vinstri græn skilgreina vændi og klám sem ofbeldi gegn konum og benda á að klám á ekkert skylt við hina hressandi og fallegu erótík. Klám er efni sem sýnir kynlíf eða kynfæri í tengslum við misnotkun og niðurlægingu og lætur slíka hegðun óátalda eða hvetur jafnvel til hennar. Ung vinstri græn hafna alfarið goðsögninni um hamingjusömu hóruna, og í því sambandi einnig goðsögninni um glæpi án fórnarlamba, og telja að hvorar tveggja þessara hugmynda séu lítið meira en langlífar nýfrjálshyggjukreddur.

Öflugt velferðarkerfi og góð félagsleg þjónusta er forsenda þess að konur geti stundað launavinnu og verið efnahagslega sjálfstæðar, auk þess sem hið opinbera velferðarkerfi er stærsti vinnuveitandi kvenna. Allur niðurskurður í velferðarkerfinu sem þýðir fækkun starfa eða lakari þjónustu hefur hvað mest áhrif á stöðu kvenna og því vilja Ung vinstri græn standa vörð um íslenskt velferðarkerfi og styrkja það. Varanlegur kynbundinn launamunur sýnir það og sannar að kapítalísku hagkerfi, frjálsri samkeppni og síaukinni nýfrjálshyggju hefur ekki tekist að skila því markmiði að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu, enn hallar á konur.

Annarra og róttækari aðgerða er þörf.

Ung vinstri græn leggja til eftirfarandi leiðir til að stuðla að kvenfrelsi

Manneskjan er ekki markaðsvara

  • Að kaup á vændi verði gerð refsiverð.

  • Að starfsemi nektardansstaða og önnur starfsemi þar sem keyptur er aðgangur að líkama fólks verði gerð ólögleg án undanþágu þar sem slík starfssemi er niðurlægandi fyrir konur jafnt sem karla.

  • Að skipulögð barátta íslenskra yfirvalda gegn mansali verði efld til muna og íslensk stjórnvöld leggi sitt að mörkum til að bæta líf og réttindi kvenna um heim allan.

 

Aðstoð fyrir fórnarlömb ofbeldis

  • Að hægt verði að flytja grunaða ofbeldismenn af heimili sínu vegna rökstudds gruns um heimilisofbeldi.

  • Að réttarstaða fórnarlamba kynbundins ofbeldis sé tryggð og fórnarlömbunum veittur aukinn stuðningur og aðstoð.

  • Að félagsleg úrræði fyrir fórnarlömb vændis og annars kynferðislegs ofbeldis verði aukin.

  • Að úrræði á landsbyggðinni fyrir konur sem verða fyrir ofbeldi verði bætt.

 

Meðvituð barátta fyrir kynfrelsi

  • Að sporna gegn klámvæðingu og staðalímyndum kynjanna með því að leggja áherslu á aukna fræðslu meðal grunn- og framhaldsskólanema um samskipti kynjanna, kynfrelsi og kynlíf.

  • Að hugtakið klám verði skýrt skilgreint í lögum og gera þá kröfu til löggæslunnar að ákvæðum um klám sé framfylgt.

  • Að hérlendis sem í öðrum heimshornum sé réttur kvenna og yfirráð þeirra yfir eigin líkama hvergi skertur, og þær hafa rétt til fóstureyðinga því samkvæmt.

  • Að kynjasjónarmið verði höfð til hliðsjónar við mótun opinberrar stefnu og allar aðgerðir hins opinbera.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica