Ung vinstri græn
Friðsöm utanríkisstefna og félagsleg alþjóðahyggja

Friðsöm utanríkisstefna og félagsleg alþjóðahyggja

Ung vinstri græn leggja áherslu á að Ísland móti sér sjálfstæða utanríkisstefnu grundvallaða á friðarstefnu og félagslegri alþjóðahyggju. Ung vinstri græn fordæma hernaðarhyggju og stríðsrekstur, ásamt öllum þeim gengdarlausu mannréttindabrotum sem þeim fylgja.

Ísland á að hafna vígvæðingu. Ung vinstri græn hvetja íslensk stjórnvöld til að beita sér fyrir alþjóðlegum samningum um afvopnun og takmarkanir á vígbúnaði. Ung vinstri græn telja aldrei ásættanlegt að kjarnorku-, sýkla- efnavopn né önnur stríðstól séu flutt um íslenska lögsögu né vistuð hér á landi. Það er skýlaus krafa að land og láð verði þegar friðlýst fyrir slíkum tækjum. Ísland á að vera herlaust land og heræfingar á Íslandi verða ekki umbornar né heldur dvöl herliðs hér á landi.

Ung vinstri græn sjá fyrir sér að hlutverk Íslands á alþjóðavettvangi sé að beita sér fyrir friði og mannréttindum. Það verður ekki gert í gegnum herská árásarbandalög á borð við Atlantshafsbandalagið (NATO). Ísland á að standa utan allra hernaðarbandalaga um alla framtíð og því segja sig tafarlaust úr NATO. Þess í stað á Ísland að efla þátttöku sína í stofnunum Sameinuðu þjóðanna og samtökum á borð við Norðurlandaráð, Evrópuráð og Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu. Ung vinstri græn vilja sérstaklega hvetja til aukinnar samvinnu við Norðurlöndin.

Ísland á að leggja sitt af mörkunum til að útrýma fátækt og hungri í heiminum og einbeita sér að verkefnum sem ekki fylgir herafli eða hermenn. Íslensk friðargæsla sem samanstendur af mönnum með drápstól er aldrei forsvaranleg. Ung vinstri græn krefjast þess að mannréttindi séu alltaf höfð í öndvegi þegar að gerðir eru viðskiptasamningar við önnur ríki eða erlend fyrirtæki og gera kröfu um að íslensk fyrirtæki sýni samfélagslega ábyrgð og virði mannréttindi hvar sem þau starfa í heiminum.

Ung vinstri græn telja stefnu Alþjóðabankans, Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins beinlínis fjandsamlega fátækum ríkjum og stuðla að óréttlæti á heimsvísu. Stefna þessara stofnana einkennist af kreddukenndum átrúnaði og áherslu á frjálsa markaðshætti og einkavæðingu algerlega án tillits til aðstæðna og hefur í fjölda tilfella gert stórskaða í þeim löndum sem minnst máttu við því. Stofnanirnar hafa ennfremur staðið aðgerðalausar hjá eða beinlínis stuðlað að auðhringar sölsi undir sig almannaeignir í kjölfar einkavæðingar. Íslendingar þurfa að beita sér fyrir endurskoðun á starfsemi þessara stofnana til að reyna eftir mætti að koma í veg fyrir slíka misnotkun valds. 

Ung vinstri græn leggja til eftirfarandi leiðir til að stuðla að auknum friði, öryggi og mannréttindum í heiminum:

Hernaður er ekki öryggi

  • Að íslensk fyrirtæki sýni siðferðislega ábyrgð og taki ekki þátt í framleiðslu, sölu og flutningi vopna.
  • Að fé skattborgara sé varið í að tryggja raunverulegt öryggi þeirra í stað þess að sóa fjármunum í heræfingar erlendra vígamanna og annað hernaðarbrask.
  • Að meiri athygli sé beint að umhverfisöryggi en nú þegar er gert

 

Mannúðleg alþjóðahyggja

  • Að alþjóðavæðingin þjóni fyrst og fremst fólki en ekki fjármagni.
  • Að Íslendingar taki við fleiri flóttamönnum.
  • Að íslensk stjórnvöld auki á markvissan hátt viðskipti við fátæk ríki.

 

Sanngjörn utanríkisstefna

  • Að íslensk stjórnvöld gangi lengra en að segjast „harma“ stríðið í Írak, og biðjist afsökunar á stuðningi sínum við stríðið.
  • Að Ísland uppfylli tafarlaust markmið Sameinuðu þjóðanna sem Ísland undirgekkst árið 1970 um að verja að minnsta kosti 0,7% af vergri landsframleiðslu til aðstoðar við fátæk ríki.
  • Að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir því að bundinn sé endir á siðlausa viðskiptahætti og arðrán í fátækum löndum.
  • Að fátæk ríki séu leyst úr skuldasnöru þeirri sem aðrán Vesturlanda kom þeim í til að byrja með.
  • Að íslensk stjórnvöld viðurkenni sjálfstæði Palestínu og landamærin frá 1967.

 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica