Ung vinstri græn
Stefnuyfirlýsing Ungra vinstri grænna

Stefnuyfirlýsing Ungra vinstri grænna

Samþykkt á landsfundi 7. október 2007

Ung vinstri græn er ungliðahreyfing Vinstrihreyfingarinnar  –  græns framboðs. Markmið hreyfingarinnar er að vera umræðu- og samstarfsvettvangur ungs fólks í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði og miðla upplýsingum um starf og stefnu flokksins til ungs fólks. Ung vinstri græn starfa í nánum tengslum við flokkinn sjálfan, en hefur sínar eigin áherslur í stjórnmálastarfi sínu. Ung vinstri græn veita þannig flokknum sjálfum aðhald, auk þess að taka þátt í þjóðfélagsumræðunni á eigin forsendum. Ung vinstri græn eiga að vera sterk og hávær rödd ungs róttæks fólks í samfélaginu.

Lýðræði, félagslegt réttlæti, velferð, kvenfrelsi og sjálfbær þróun eru lykilhugtök sem eru eins og rauður þráður í stefnu Ungra vinstri grænna. Stefnuyfirlýsingin var fyrst samþykkt á landsfundi Ungra vinstri grænna í Reykjarvík þann 7. október 2007. Stefnuyfirlýsingin er í stöðugri endurskoðun en allar breytingar eru háðar samþykki landsfundar sem er æðsta ákvörðunarvald hreyfingarinnar.



 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica