Ung vinstri græn
Landsfundarályktanir 2008

Landsfundarályktanir 2008

Í viðbót við þessar ályktanir var stjórn UVG falið það verkefni að fullvinna sparnaðaráætlun og hana er að finna hér.

Ályktun um umhverfismál

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri 4.-5. október, krefst þess að horfið verði frá þeirri niðurrifsstarfssemi sem stóriðjustefna stjórnavalda er og það strax. Það að fórna einstökum náttúruperlum fyrir fjárhagslegan gróða til skamms tíma er engan veginn réttlætanlegt gagnvart komandi kynslóðum og stangast á við hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Ung vinstri græn vilja um leið minna á að erfiðleikar í íslensku efnahagslífi nú um stundir eru að miklu leyti tilkomnir vegna þeirrar þenslu sem fylgdi stóriðjuframkvæmdum á Austurlandi síðustu ár.

Aðskilnaður ríkis og kirkju

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, ítrekar fyrri ályktanir sínar, að aðskilja beri ríki og kirkju tafarlaust.

Höfnum hernaðarhyggju

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, krefst þess að varnarmálalög utanríkisráðherra verði þegar í stað afnumin. Með þeim var lögfest þátttaka Íslands í hernaðarstefnu sem er í sífelldum vexti víða um heim með skelfilegum afleiðingum. Stríð og hernaður leysa engan vanda heldur leiða til sundrungar fjölskyldna, eymdar og dauða. Landsfundurinn krefst þess að íslensk stjórnvöld segi sig úr NATO án tafar og stígi þannig fyrsta skrefið að því að mynda sjálfstæða og friðsama utanríkisstefnu. Þegar slík stefna hefur verið mynduð mun Ísland fyrst geta orðið í fararbroddi í þeim mikilvægu friðarumleitunum sem nauðsynlegt er að eigi sér stað í heiminum.

Unnin verði stefna innan UVG í samskiptum Íslands við Evrópusambandið
Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4. til 5. október 2008, felur stjórn hreyfingarinnar starfsárið 2008-2009 að efna til upplýstrar umræðu um samskipti Íslands við Evrópusambandið innan hreyfingarinnar. Það skal stjórnin gera með því að standa fyrir fræðandi fundum um málefnið. Á slíka fundi skal fá fólk með sérþekkingu á málinu auk þess sem skoðanir allra félaga skulu kallaðar fram. Þessi vinna skal síðan verða grundvöllur að stefnu Ungra vinstri grænna í samskiptum Íslands og Evrópusambandsins sem stjórn hreyfingarinnar skal leggja fram sem hluta af stefnuyfirlýsingu á næsta landsfundi.

Stöndum vörð um matvælaöryggi á Íslandi

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, hvetur Alþingi Íslendinga til að hafna matvælafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Frumvarpið felur í sér viðamiklar breytingar sem munu hafa skelfilegar afleiðingar fyrir matvælaöryggi á Íslandi. Ung vinstri græn telja það vítavert gáleysi að leggja til atlögu við eina megin stoð íslensks atvinnulífs eins og ástandið er. Í ljósi þeirrar uggvænlegu efnahagskreppu sem nú ríkir er nauðsynlegt sem aldrei fyrr að standa vörð um og styðja við frumvinnslugreinar eins og landbúnað og sjávarútveg.
 

Ályktun um friðarbandalag þjóða

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, leggur til að Íslendingar hafi frumkvæði að stofnun alþjóðlegs friðarbandalags þjóða, sem starfi sem afl gegn NATO og öðrum árásarbandalögum. Það er afar brýnt að friðelskandi þjóðir efli tengsl sín og vinni í sameiningu að betri og friðsælli heimi. Íslendingar verða að axla samfélagslega ábyrgð á hnattræna vísu. Stríð leysa engin vandamál heldur ala á ótta, ofbeldi, misnotkun, fátækt, þjáningum og dauða. Því er mikilvægt að ráðamenn heimsins átti sig á því að það að stríða fyrir friði er þversögn og að eldur verður ekki slökktur með eldi.
 

Ályktun um efnahagsmál

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, krefst þess að mynduð verði þjóðstjórn með aðkomu allrastjórnmálaflokka á Íslandi í ljósi þeirra efnahagsþrenginga sem nú standa yfir. Ríkisstjórnin undir forystu Geirs Hilmars Haarde er rúin trausti þjóðarinnar og því er þörf á nýjum forystumönnum í stjórnmálunum sem gætu endurvakið traust þjóðarinnar. Stjórnarherrar eru ekki þess umkomnir við núverandi aðstæður að hafna útréttri sáttahönd Steingríms J. Sigfússonar.

Ung vinstri græn fordæma stjórnvöld fyrir það andvaraleysi sem einkennt hefur efnahagsstjórnun landsins. Þrátt fyrir ítrekanir aðvaranir Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hagfræðinga og Seðlabanka Íslands hafa stjórnvöld brugðist skyldum sínum og með aðgerðaleysi sínu orðið til þess að íslenskt efnahagslíf er nú í áður óþekktri niðursveiflu sem ekki sér fyrir endann á. Aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er í raun og veru aðgerð til þess fallin að meginþungi vandans lendir á heimilum í landinu í stað þess að lenda á þeim sem bera ábyrgð á ástandinu.

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hefur undanfarin misseri ítrekað bent á að áframhaldandi hömlulaus neysluhyggja, samfara gríðarlegum stóriðjuframkvæmdum og síðast en ekki síst skattalækkunum sem helst gagnast tekjuhæstu hópum samfélagsins, myndu verða til þess að óðaverðbólga skapaðist hérlendis, sem raunin hefur orðið

Hrun heimskapítalismans

Landsfundur Ungra vinstri grænna, haldinn á Akureyri helgina 4.-5. október 2008, harmar að hrun hins óhefta og ómannúðlega heimskapítalisma skuli nú bitna á þeim sem síst skyldi, eins og útlit er fyrir. Ung vinstri græn minna hins vegar á að fjármálakreppur á við þá sem nú á sér stað eru órjúfanlegur þáttur í þeim kreddukapítalisma sem tekur hugmyndafræðilegar kreddur frjálshyggjunnar fram yfir staðreyndir og klassísk manngildi. Ung vinstri græn telja einsýnt að dagar þessa óhefta heimskapítalisma séu senn taldir. Líkt og við fall Berlínarmúrsins árið 1989, sem markaði upphafið að hruni sovétkommúnismans, er annað þjóðfélagsskipulag nú að hrynja til grunna. Ekki er seinna vænna að stjórnvöld, félagasamtök og almenningur hefji strax að vinda ofan af þessu þjóðfélagsskipulagi, sem leitt hefur til gríðarlegs ójöfnuðar og umhverfisslysa um allan heim.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica