Ung vinstri græn
Landsfundarályktanir 2007

Landsfundarályktanir 2007

Ályktanir landsfundar Ungra vinstri-grænna, sem haldinn var í Reykjavík 6.-7. október 2007.

Frjáls Palestína

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október 2007, lýsir stuðningi sínum við sjálfstætt og lýðræðislegt ríki í Palestínu. Ísland á ekki að viðurkenna rétt Ísraelsríkis til hertekinna landsvæða í Palestínu. Þingið fordæmir stöðuga hersetu Ísraelsríkis í Palestínu og árásir þess á nágranna sína.

Leiðréttum laun

Launa og starfskjör umönnunarstétta, grunnskóla- og leikskólakennara hafa verið skipulega skert að hálfu ríkis og sveitafélaga á undanförnum árum. Flótti úr þessum starfsstéttum bitnar á gæðum þess starfs sem þar fer fram og landsfundur UVG harmar að kjör þessara stétta þurfi að leiðrétta í stórum stökkum. Farsælla væri að ríki og sveitafélög ættu frumkvæði að leiðréttingu launa áður en í óefni er komið.

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október 2007, ályktar að í komandi kjarasamningum skuli lögð áhersla á að leiðrétta laun umönnunarstétta, kennara, leikskólakennara og sambærilegra stétta.

Átak í samgöngumálum

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október 2007, telur nauðsynlegt að lyfta grettistaki í samgöngumálum á Íslandi. Afleiðingar gríðarlegrar bílaeignar landas eru m.a.s. mikil mengun og slita á vegum, sem rýrir lífsgæði borgaranna og sólundar fjármunum þess. Vitundarvakningar er þörf á sviði vistvænna samgangna. Fundurinn fagnar því að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu skuli nú undanskilja skólafólk gjaldtöku í strætisvögnum á höfuðborgarsvæðinu. Sú aðgerð hefur skilað gríðarlegri aukningu farþega strætisvagna. Slíkt hefur einnig gerst á Akureyri, þar sem að allir fá frítt í strætó. Þingið leggur til að öll gjaldtaka í strætisvagna verði felld niður til að stuðla að bæði vistvænni og greiðari samgöngum sem eru gríðarlegur ávinningur fyrir samfélagið allt. Ung vinstri-græn telur að endurvekja eigi strandsiglingar til að auka umferðaröryggi, efla byggðir landsins og draga úr mengun.

Fundurinn styður einnig skattaívilnanir fyrir farartæki sem ganga fyrir vistvænnri orku og leggur til aukna skattlagningu á eldsneytisfrek og mengandi farartæki sem ekki flokkast sem atvinnutæki, í anda þeirrar stefnu að það borgi sig að vera umhverfisvæn(n) en það kosti að menga. Ennfremur er lagt til að átak verði gert í að koma á laggirnar almennilegum hjólreiðastígum hvarvetna um höfuðborgarsvæðið.

Ung vinstri-græn vilja leggja áherslu á að einbreiðum brúm verði útrýmt af þjóðveginum og hann allur malbikaður hið snarasta. Líta ber á það sem forgangsatriði að tryggja öruggar og greiðar samgöngur fyrir alla landsmenn, til að tryggja jöfn tækifæri og jöfn lífsgæði.

Fordæmum ofbeldisverkin í Búrma

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október 2007, fordæmir ofbeldisfullar aðfarir herforingjastjórnarinnar í Búrma gegn friðsömum mótmælendum þar í landi. Ráðist hefur verið með hervaldi og offorsi á óvopnaða saklausa borgara og þeim misþyrmt hrottalega. Mikill fjöldi fólks hefur fallið í aðgerðum hersins og margir hafa verið fangelsaðir. Talið er að þúsundir manna séu í haldi yfirvalda í kjölfar mótmælanna. Herforingjastjórnin hefur reynt að þagga niður í fréttum af atburðunum til að leyna öllum þeim mannréttindabrotunum sem hafa verið framin fyrir alþjóðasamfélaginu.

Landsfundurinn fordæmir einnig ólögmæta frelsissviptingu Aung San Suu Kyi. Hún hefur nú setið í stofufangelsi í heimalandi sínu, Búrma, í 18 ár eða síðan herforingjastjórnin neitaði að viðurkenna kosningar þar sem stjórnmálaflokkur hennar vann yfirburðasigur. Það er skammarlegt að önnur ríki heims hafi ekki gert meira til að frelsa hana úr prísund sinni.

Ung vinstri-græn bæði fagna og taka undir yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda sem tekin var upp á þingi Sameinuðu þjóðanna, þar sem að íslensk stjórnvöld fordæma ofbeldisverkin. Leggja verður áherslu á að grundvallarmannréttindi séu virt, krefjast lausnar pólitískra fanga og fara fram á rannsókn á þeim ofbeldisverkum og mannréttindabrotum sem framin hafa verið, svo sækja megi ofbeldismennina til saka.
 

Stríðsbandalagið NATO

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október2007, mótmælir því harðlega að ríkisstjórn Íslands skuli bjóða heim á hlað hernaðarbandalaginu NATO. Það er hneisa að ársfundur NATO-þingsins, sem haldinn er dagana 5.-9. október 2007, skuli vera hýstur hér á landi og á kostnað Íslendinga. Íslendingum væri meiri sómi af því að verja þeim tíma og fjárhæðum sem eytt er í fundinn til þess að veita flóttamönnum frá stríðshrjáðum löndum hæli hér á landi og til að styrkja íbúa þeirra svæða sem árásir NATO hafa skilið eftir í sárum

Það er engin lausn á innanlandsátökum, harðstjórn eða þjóðarmorðum að senda tugi sprengjuflugvéla yfir svæðið. Það felst engin frelsun í því að skjóta úr byssum eða varpa sprengjum á fólk. Það verður aldrei of oft hamrað á því að NATO er hvorki friðar- né varnarbandalag, það hefur einungis stundað árásarhernað frá því það var stofnað árið 1949. Það er hræsni og siðblinda, eða í besta falli fáviska, að sjá ekki í gegnum þá sauðagæru sem NATO hefur sett upp sem friðar- og varnarbandalag. Það á ekkert skylt við friðelskandi þjóð að bjóða slíkum samtökum hingað til lands.

Landsfundurinn krefst þess að íslensk stjórnvöld segji sig úr NATO án tafar og stígi þannig fyrsta skrefið að því að mynda sér sjálfstæða og friðsama utanríkisstefnu. Þegar slík stefna hefur verið sett mun Ísland fyrst geta orðið í fararbroddi í þeim mikilvægu friðarumleitunum sem nauðsynlegt er að eigi sér stað í heiminum.

Stöðvum verslun með manneskjur

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október, lýsir yfir vanþóknun sinni á starfsemi nektarstaða og annarra staða þar sem verslað er með líkama fólks. Mannslíkaminn er ekki söluvara. Einnig bendir fundurinn á þá staðreynd að úrræði vantar fyrir fórnarlömb mansals og vændis hér á landi og skorar fundurinn á stjórnvöld að bæta úr því tafarlaust.

Aðskilnaður ríkis og kirkju

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október, ítrekar fyrri ályktanir sínar, að aðskilja beri ríki og kirkju tafarlaust.

Ólýðræðisleg framganga borgarstjórnarmeirihluta

Landsfundur Ungra vinstri-grænna, haldinn í Reykjavík helgina 6.-7. október, lýsir yfir hneikslun á ólýðræðislegum vinnubrögðum borgarstjórnarmeirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í málefnum Orkuveitu Reykjavíkur. OR hyggst selja einkafyrirtæki þá þekkingu sem opinbert fyrirtæki hefur aflað á undanförnum áratugum. Þessi þekking er einstök á heimsmælikvarða og það að einkafyrirtæki fái hana upp í hendurnar á nokkurrar fyrirhafnar er fáránlegt. Með þessum aðgerðum er borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks að hleypa einkafyrirtæki inn bakdyramegin í opinbera stofnun og þar með stíga stórt skref í átt að einkavæðingu.


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica