Ung vinstri græn
Pistlar

1.9.2010 Daníel Haukur Arnarsson

Er andstaðan eins góð og hún segir sig vera?

daniel

Sjálfstæðismenn hafa verið duglegir við það að tala um sínar tillögur í efnahagsmálum. Á bloggvef Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns Sjálfstæðisflokksins er ítrekað að þessar tillögur hafa verið lagðar fyrir ríkisstjórnina. Ég gladdist yfir þessu, ekki af því að ég væri Sjálfstæðismaður heldur út af því að þó svo að flokkurinn sé í andstöðu þá greinilega veitir hann stjórninni aðhald með skýrum hugmyndum.

Bros mitt var ekki lengi að mást af eftir að ég las tillögurnar á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins. Ég hefði alveg eins getað lesið staðreyndir um efnahagsmál. Hvar voru hugmyndirnar? Valdi ég alveg örugglega réttan tengil á síðunni?

Tillögur Sjálfstæðisflokksins byggjast fyrst og fremst að skoða málin.
Hér koma nokkrar efnisgreinar úr ,,tillögum" flokksins.

,,Vandamálin sem heimilin standa nú frammi fyrir eru viðameiri og margslungnari en margur ætlar. Í grunninn má segja að þau felist í skulda- og greiðslubyrði."

Semsagt, mörg heimili á Íslandi voru með greiðslybyrði sem hefur nú tvöfaldast, jafnvel þrefaldast. Hærri vextir, lægra gengi, verðbólga og lækkun launa. Gleymir flokkurinn ekki að skýra út fyrir fólki af hverju minna er á milli handanna?

,,Þessir þættir voru að mestu ófyrirséðir og afleiðing af alheimskreppu, ójafnvægi í efnahagslífinu og hruni fjármálakerfisins..."

Þetta er svarið sem við fáum frá Sjálfstæðisflokknum af hverju kreppan skall á! Þetta er svarið sem við fáum frá flokknum af hverju fólk hefur áhyggjur af peningum, að fólk geti ekki borgað skuldir, að fólk geti hreinlega ekki keypt í matinn. Þetta er greinilega svona einfalt: Alheimskreppa.

Ég vil rifja upp staðreynd, því ég vil frekar benda á staðreyndir heldur en að skrifa innantóm orð, þau orð má finna á vef Sjálfstæðisflokksins undir ,,efnahagstillögur“. Staðreyndin er sú að Ísland skuldar u.þ.b. 310% af þjóðarframleiðslu. Brotabrot af þessari prósentu er eflaust alþjóðakreppunni að kenna. En hvers vegna lendum við svona illa í henni?

Ríkisstjórn Davíðs Oddsonar og síðar ríkisstjórn Geirs H. Haarde stóð ekki í lappirnar. Það var varað við kreppunni en hvorug ríkisstjórnanna hlustaði. Hafði ekki áhuga. Hélt áfram að gefa ríkisstofnanir til fjárglæframanna sem í þeirri tíð voru kallaði útrásarvíkingar. Fyrrverandi ríkisstjórnir, sem Sjálfstæðisflokkurinn leiddi, kom okkur í kreppu. Það var ekki alheimurinn, það var ekki núverandi ríkisstjórn og það var ekki Jón Ásgeir eða Björgólfur Thor.

Ríkisstjórnir frá árunum 1991-2008 tóku rangar ákvarðanir. Hagsmunir þjóðarinnar voru ekki í forgangi. Velferðarkerfið var fjársvelt og löggæslukerfið var fjársvelt einnig. Á góðærisárunum var ekki spýtt meira fé inn í ríkisstofnanir heldur voru þær seldar til útrásarvíkinga sem sigldu þeim í þrot. Hefði ekki verið ráðlegt að halda t.d. einum ríkisbanka eins og Ögmundur Jónasson lagði til og uppskar mikinn hlátur þáverandi ríkisstjórnar? Við hefðum þá verið í mun betri málum í dag.

Eflaust tauta einhverjir yfir þessari grein og segja að það eigi ekki endalaust að benda á fyrrverandi ríkisstjórnir. Sannleikurinn er sá að við verðum, sem þjóð, að muna þetta. Við megum ekki gera fyrrverandi ríkisstjórnum þann greiða að gleyma þessu. Við verðum að setja hlutina í langtímaminnið og muna eftir því hver eru ábyrg fyrir hruninu. Fyrrverandi ríkisstjórnir eru ábyrgar og ég bíð enn eftir afsökunarbeiðni frá Sjálfstæðisflokknum, því það var sá flokkur sem leiddi þjóðina í ógöngur og koma nú ekki með neinar skýrar hugmyndir að endurreisn eins og hver manneskja getur séð á heimasíðu þeirra.


Daníel Haukur Arnarson
höfundur situr í stjórn Ungra vinstri grænna

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica