Ung vinstri græn
Pistlar

5.8.2010 Þórunn Rögnvaldsdóttir

Sveitarfélögin og tónlistarskólarnir

Þórunn Rögnvaldsdóttir

Nú fer sumrinu óðum að ljúka og nemendur fara að halda aftur í skólann, einnig fara tónlistarnemendur að byrja aftur í sínu námi. Þó ber að geta þess að ekki allir eiga kost á að halda áfram tónlistarnámi sínu, hvað þá byrja á því.  

Flestir framhaldsskólanemar, sem margir hverjir neyðast til þess að fara að heiman til að sækja nám, eiga þess ekki kost að halda áfram með tónlistarnám sitt vegna þess að sveitarfélagið þeirra neitar að styrkja þá og borga þá upphæð sem að krafist er að það borgi. Sú upphæð er beinn kennslukostnaður en nemendur borga sjálfir fyrir rekstarkostnað skólans. Borgi sveitarfélagið ekki þá er nemendum heldur ekki leyfilegt að borga alla upphæðina sjálfir þar sem að það þykir bera vott um mismunun, enda eru ekki margir sem að gætu lagt út slíka upphæð. Nú veita sum sveitarfélög, sem eru betur stödd en hin, styrki og því er nú þegar mismunun í gangi. Sveitarfélögin eru ekki skyldug  til þess að styrkja nemendur í tónlistarskóla og nú eru það sjálfsagt enn færri sem eru styrktir vegna niðurskurðar sem að skólarnir eru að ganga í gegnum.

Það eru ekki einungis eru nemendur sem flytjast tímabundið að heiman sem þurfa að fara í skóla utan síns sveitarfélags, slíkt getur stafað af ýmsum ástæðum. Til að mynda eru sumir þeirra komnir inn á framhaldsstig og þurfa þess vegna meira menntaða kennara en boðið er upp á í þeirra skóla. Einnig er oft ekki boðið upp á námið sem að nemandinn vill stunda, svo geta náttúrulega komið upp vandamál í tónlistarskólum milli kennara og nemenda eða milli nemendanna sem og í öðrum skólum. Það þarf að huga að þessu ölllu en það hefur lítið verið að gert.

Ég skora á sveitarfélögin og ríkið að finna leið til að leysa úr þessu vandamáli. Það þarf að gera svo að tónlistarnemendur þurfi ekki að bíða í óvissu um hvort þeir geti sinnt námi sínu, sem og að hæfileikaríkir nemendur detti ekki út úr námi fyrir vanhæfni sveitarfélagana og ríkisins til að komast að niðurstöðu í málinu.

Þórunn Rögnvaldsdóttir
höfundur er gjaldkeri í stjórn Ungra vinstri grænna

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica