Ung vinstri græn
Pistlar

28.5.2010 Tómas Gabríel Benjamin

Ill nauðsyn

Tómas Gabríel Benjamín

Viss mýta hefur orðið háværari í samfélaginu upp á síðkastið, þess efnis að ríkistjórnin sé einhverskonar ill nauðsyn. Stjórnmálamenn eru taldir ófærir um að koma einhverju í verk og stjórnmál í heildina eru neikvæð. Samt sem áður þarf einhver að stjórna ríkinu. Það skapast staða þar sem stjórnmálamenn eru taldir nauðsynlegir til að halda ríkinu gangandi, þrátt fyrir að það væri best að þeir væru það ekki. Átján ára valdatíð íhaldsins virðist styðja þessa kenningu en kannski er því öfugt farið. Kannski er ríkisstjórnin fyrrverandi ekki einkenni mýtunnar, heldur orsök hennar. Kannski er kominn tími á ríkisstjórn sem byggist ekki á stefnu eftirlitsleysis og vinavæðingar heldur á velferð og félagshyggju. Kannski þarf að vinna að því að bæta stöðu þeirra sem minnst mega sín og skapa grundvöll fyrir raunverulegt jafnrétti í stað þess að viðhalda bara ríkjandi ástandi.

Kannski erum við nú þegar búin að kjósa þessa vinstri sinnuðu ríkisstjórn, en sjáum það ekki vegna þess að við erum orðin of vön harðstjórn og misrétti. Kannski erum við að rugla saman gagnrýnu aðhaldi og bölsýni í garð þeirra sem sýna bæði í orði og verki vilja til þess að gera eitthvað í ástandinu. Ef svo er, þá ber að hafa í huga hvaða fleiri birtingarmyndir þessi mýta hefur á yfirvofandi sveitastjórnarkosningar. Gætu borgarbúar verið orðnir það bölsýnir að þeir vilji kjósa yfir sig sömu svikahrappana enn á ný? Dugar þeim að breyta um kosningarkjörorð? Fólk verður að spyrja sig hvort fylgi grínframboða séu merki um pólitískan húmor eða vonleysi. Eru kjósendur að lýsa vantrausti á kosningakerfið eða eru þeir búnir að gefast upp á að beita gagnrýninni hugsun og vilja þess í stað fá fræga leikara til að skemmta þeim á meðan skipið sekkur?

Er lausnin ekki sú að kanna eigin hug, skoða framboðin og kjósa eftir upplýstri ákvörðun? Að rugla ekki saman kreddum, mýtum og kosningaloforðum?


Tómas Gabríel Benjamin
höfundur er ritari UVG

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica