Fjölbreyttari húsnæðismarkaður
Á Íslandi hefur húsnæðiskerfi þar sem blanda af séreignarhúsnæði og óöruggur almennur leigumarkaður hefur ráðið ríkjum. Nú blasa hinsvegar við breyttar aðstæður í kjölfar hrunsins. Aðstæður fólks hafa breyst gríðarlega og margir eiga það á hættu að eiga ekki þak yfir höfuðið. Íbúasamvinnufélög sem reka öruggt leiguhúsnæði tíðkast hér í mun minna mæli en víðast hvar á Norðurlöndunum. Núverandi kerfi þar sem séreignarhúsnæði og óöruggur leigumarkaður ráða ríkjum, svarar ekki breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu eftir hrun. Nú er lag til að stokka upp í kerfinu og gefa spilin upp á nýtt. Margir kostir eru í boði varðandi önnur úrræði í kring um rekstur húsnæðis.
Leigumarkaður á félagslegum grunni
Íbúasamvinnufélög eru rekin á félagslegum grunni af og fyrir íbúa. Íbúar verða „hluthafar“ í félögunum og reksturinn er í þágu íbúa en ekki hluthafa á markaði. Þetta gerir það að verkum að öruggt leigu- og kaupleiguhúsnæði stendur fólki til boða á sanngjörnum kjörum. Margir búa alla ævi í leiguhúsnæði sem þeir geta lagað að þörfum og stærð fjölskyldunnar að hverju sinni. Þetta er alls ekki óraunhæf leið enda verið ríkjandi á Norðurlöndunum og víðsvegar í Evrópu um áratuga skeið og reynst vel. En það þarf sameiginlegt átak fleiri aðila til þess að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd og gera þær að veruleika.
Nýjar lausnir í húsnæðismálum
Nauðsynlegt er að Reykjavíkurborg eigi frumkvæði að því að leiða ólíka aðila saman til að leysa húsnæðisvandann á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðin, Íbúðalánasjóður, félagsmálaráðneyti og íbúasamvinnufélög geta lagst saman á eitt til að finna viðeigandi lausnir. Húsnæði stendur autt víðsvegar um höfuðborgarsvæðið á meðan margir eiga ekki þak yfir höfuðið. Autt húsnæði má nýta undir íbúasamvinnufélög sem bjóða upp á öruggt og boðlegt leigu- og kaupleiguhúsnæði. Mikilvægt er að slík félög yrðu rekin á félagslegum grunni. Íbúarnir væru eigendur þeirra og leiga myndi duga fyrir viðhaldi, umsýslu og öðrum kostnaði. Þessi lausn getur tryggt einstaklingum og fjölskyldufólki öruggt og boðlegt húsnæði á betri kjörum. Nú er lag! Við eigum að þora að hugsa húsnæðiskerfið upp á nýtt! Við þurfum ekki að festast í viðjum vanans.
Elín Sigurðardóttir
höfundur situr í stjórn Ungra vinstri grænna og skipar 4. sæti á lista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 29. maí nk.
Greinin birtist í Smugunni 17. maí sl.
