Ung vinstri græn
Pistlar

17.5.2010 Steinunn Rögnvaldsdóttir

Þá er þörf að velja

Steinunn Rögnvaldsdóttir

Rúmum tveim mánuðum áður en hin þekkta rannsóknarskýrsla um bankahrunið leit dagsins ljós, lá fyrir Alþingi áhugaverð þingsályktunartillaga. Í tillögunni var gert ráð fyrir að sett yrði á laggirnar rannsóknarnefnd sem skyldi gera skýrslu um aðdraganda og ástæður stuðnings Íslands við innrásina í Írak árið 2003. Eins og kunnugt er var sú ákvörðun tekin af Davíð Oddssyni þáverandi forsætisráðherra, með stuðningi Halldórs Ásgrímssonar þáverandi utanríkisráðherra, án þess að nokkur umræða færi fram um málið á Alþingi.

Þessar tvær skýrslur væru raunar ekki svo ólíkar. Ein snýst um að rannsaka heimskulega og glæpsamlega hegðun, græðgi og tap á fjármunum, en hin myndi rannsaka hví íbúar Íslands voru gerðir stuðningsmenn morða og misþyrminga á hundruðum þúsunda manna, kvenna og barna. Allt leiðir þetta okkur í raun að sömu spurningunni, spurningunni um gildi og siðferði ráðamanna þjóðarinnar og Íslendinga sjálfra.

Enginn skyldi halda að það dugi að birta eina eða tvær skýrslur til að breyta siðferðisvitund. Þegar fyrirtæki sem selur hernaðarþjónustu – öðru nafni málaliðar –  sækist eftir aðstöðu á Keflavíkurflugvelli, upphefst söngur um nauðsynlega atvinnuuppbyggingu. Öll þau sem eru mótfallin málaliðaherjum eru sögð hræsnarar því að þau gera ekkert til að koma í veg fyrir að illmenni heimsins kjamsi á íslenskum þorski. Gott ef að þau eru ekki á móti sárabindum líka.

Stuttu seinna birti Wikileaks myndbandsupptöku af morðum bandarískra hermanna á saklausum íröskum borgurum. Upptakan stuðaði samfélagið, en ekki kom þó á óvart að enginn leiðari birtist í Fréttablaðinu um stríðsglæpina sem blasa við í hinu sláandi myndbandi.Þó hafði sárabinda- og atvinnuhatri Vinstri grænna, sem vilja bersýnilega enga atvinnustarfsemi fyrst þau vilja ekki einkarekinn her, verið gerð góð skil í leiðara blaðsins tveimur vikum áður.

Staðreyndin er sú að hermennirnir sem fremja þessi morð eru þjálfaðir með hjálp nákvæmlega sömu tegundar fyrirtækja og þess sem vill setjast að á Suðurnesjum, við mikinn fögnuð Sjálfstæðisflokksins. Staðreyndin er líka sú að óbreyttir borgarar eru helstu fórnarlömb stríðsreksturs og stríðsrekstur er fjármagnaður af samtökum eins og NATO, sem Ísland er hluti af og greiðir fé til. Og það er einnig staðreynd að Ísland hefur lýst yfir stuðningi við dauða, heimilis- og heilsuleysi hundruð þúsunda borgara í gegnum stuðning sinn við stríðsátökin í Írak.

Í rannsóknarskýrslunni um aðdraganda bankahrunsins er greint frá vanrækslu, hagstjórnarmistökum, frjálshyggjuflippi, spillingu og græðgi sem stuðluðu að hruninu. Þar er einnig sérstakur kafli um siðferði. Sú staðreynd að starfsháttum og siðferði var víða ábótavant í íslensku samfélagi var þáttur í því hve illa fór á Íslandi, samkvæmt skýrslunni. En siðferði er víðar ábótavant í íslensku samfélagi en í viðskiptalífinu. Það siðferði sem hefur þrifist hér í stjórnartíð hægriflokkanna felur í sér að það sé í lagi að afhenda vinum sínum ríkisbanka fyrir túkall með gati, selja aðgang að líkömum kvenna, setja náttúruna á dauðalista og falsa undirskrift Íslands á morðtékkanum fyrir Íraksstríðið, svo fátt eitt sé nefnt. En það sem er alvarlegast er að þessi stefna er ekki horfin. Hún er í framboði í vor, í boði hrunflokkanna. Og þá er þörf að velja. Hvað ætlar þú að velja í vor?


Steinunn Rögnvaldsdóttir
höfundur er fyrrverandi formaður UVG

Greinin birtist í Íllgresi 2010

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica