Ung vinstri græn
Pistlar

19.4.2010 Atli Sigurðsson

Bandaríkjaher með buxurnar á Hælunum

atli-sigurdarson

Það er orðið all ljóst að Bandaríkjaher hefur stórlega misstigið sig. Samkvæmt myndbandi sem birtist á vefnum Wikileaks þá drápu þeir tvo saklausa borgara innan um menn með AK 47 rifla og einn mann með sprengjuvörpu. Einnig drápu þeir nokkrar tylftir manna til viðbótar. Allt þetta átti sér stað í úthverfi Bagdad þann 12. júlí 2007.

Tvær Apache árásarþyrlur unnu markvisst saman að „verkefninu”. Þyrlurnar eru búnar 30mm byssum” báðum megin á þyrlunum. Einungis er nóg að miða í miðjuna á hóp til að drepa eina tylft manna ef ekki tvöfalt eða þrefalt fleiri. Af samtölum mannana að dæma þá fannst mér þeir vera algerir rasshausar vegna lítilsvirðingar við látið fólk. “Dead bastards”, “nice” og “hahahaha” o.s.frv. fengu að flakka eftir drápin á a.m.k. 8 manns. Ég hélt að það ætti að vera agi í bandaríska hernum en ekki menn með buxurnar á hælunum sem bera enga virðingu fyrir látnu fólki. Þeir þyrftu allir að fara á námskeið í mannasiðum því þeim veitir sko ekki af því.

Það sést frekar greinilega að tveir menn innan um hóp mannana halda ekki á AK 47 riflum yfir hægri öxlina heldur myndavélum. Hermennirnir ákveða svo að þeir séu með AK 47 rifla eins og hinir í hópnum.
Í myndbandinu sést hvar hermaður biður um leyfi til árásar. Það fæst og allir mennirnir eru skotnir nema tveir og þeir nást stuttu eftir á.

Samkvæmt myndbandinu með athugasemdum sem það inniheldur þá voru hermennirnir ekki ákærðir fyrir herrétti þar sem árásin var túlkuð innan lagaramma hersins. Wikileaks hefur tekið viðtöl við sýna kjaftaskúa og einnig blaðamenn og vitni tengd atvikinu til þess að staðfesta að viðkomandi atvik hafi átt sér stað. Eftir þetta myndband var birt þá missi ég enn meira álit á Bandaríkjaher og Bush stjórninni sem var við völd allt til 2009 þegar Obama tók við stjórnartaumnum.

Atli Sigurðsson

Heimildir:
www.wikileaks.com
www.collateralmurder.com
www.pressan.is


Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica