Opið bréf til þingmanna VG
Kæru þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.
Ég skrifa ykkur vegna frumvarps til laga um ein hjúskaparlög sem
dómsmálaráðherra hefur lagt fram.
Mig langar að byrja á að hrósa ríkisstjórninni fyrir að leggja fram
frumvarp sem fellir úr gildi lög um staðfesta samvist svo hætt verði að
gera greinarmun á hjónaböndum samkynhneigðra og gagnkynhneigðra í
íslenskum lögum. Frumvarpið er löngu tímabært, enda er vandséð hvernig það
er, eða hefur nokkurn tímann verið, réttlætanlegt að ein lög gildi um
samkynhneigða en önnur um gagnkynhneigða.
Erindi mitt varðar það undanþáguákvæði sem er í núverandi hjúskaparlögum
og felst í því að prestar geti neitað að gefa saman samkynhneigð pör á
grundvelli trúarsannfæringar sinnar. Nú er það svo að ég álít það ekki
koma mér við hvaða sérvisku prestar eða annað fólk viðhefur heima hjá sér,
svo lengi sem slíkt mismunar ekki öðrum. Öðru máli gegnir þegar opinberum
starfsmönnum er veitt leyfi með lögum til að mismuna einstaklingum á
grundvelli kynhneigðar.
Prestar eru samkvæmt lögum opinberir starfsmenn. Að veita opinberum
starfsmönnum heimild til að mismuna fólki á grundvelli kynhneigðar er að
leggja blessun sína yfir þá mismunun sem frumvarpi dómsmálaráðherra er
ætlað að eyða. Það er óásættanlegt og gengur gegn grundvallarstefnu
Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs um jafnan rétt allra án tillits til
kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, litarháttar og uppruna. Í stefnu
Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í jafnréttismálum segir: „Við gerum
kröfu um fullt jafnrétti til náms og jafnan rétt allra til opinberrar
þjónustu, upplýsinga um samfélagsleg málefni og til virks
tjáningarfrelsis.”
Í ljósi þessa skora ég því á þingmenn Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs að leggja fram breytingartillögu við frumvarp dómsmálaráðherra
þar sem undanþáguákvæði presta til að mismuna fólki eftir kynhneigð þess
er fellt úr gildi. Sé slík breytingartillaga ekki lögð fram er verið að
leggja blessun yfir að opinberir starfsmenn mismuni fólki eftir
hentugleika og eigin duttlungum. Slíkt eiga fulltrúar
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs aldrei að líða.
Með bestu kveðju,
Steinunn Rögnvaldsdóttir, fulltrúi í flokksráði VG og fyrrum formaður
Ungra Vinstri grænna.

