Ung vinstri græn
Pistlar

7.3.2010 Daníel Haukur Arnarsson

Samspil einkavæðingar og mútugreiðslna

Daníel Haukur Arnarson

Fólk hefur spurt mig nokkrum sinnum, síðustu misserin, hvers vegna ég væri að vinna með Vinstrihreyfingunni - grænu framboði. Af hverju ég legði nafn mitt við flokkinn og hvers vegna í ósköpunum ég hefði meira að segja boðið mig fram fyrir hreyfinguna. Sumir hafa jafnvel gengið það langt að kalla mig kommúnista, hryðjuverkamann eða liðsvein kommúnistaafla.

Í fyrsta lagi þá eru Vinstri græn ekki kommúnistar og síður en svo hryðjuverkamenn, svo það sé á kristaltæru. Vinstrihreyfingin – grænt framboð var stofnuð á grundvelli mannréttindasjónarmiða, umhverfisverndar og friðar, að ógleymdum kvenfrelsissjónvarmiðum flokksins og öflugs velferðarkerfis sem ríkið á að leiða.

Margir telja það algjöra fásinnu hjá Vinstrihreyfingunni grænu framboði að ætla ríkinu forystu í grunnstoðum velferðarkerfisins. Upp hafa komið hugmyndir um einkavæðingu og að hún sé það eina rétta. Frelsi mannsins til að reka grunnstoðir samfélagsins, til þess að græða pening fyrir sjálfan sig. En eigum við að leggja traust okkar á einstaklinga sem kaupa grunnstoðir samfélagsins og vilja reka þær með gróða?

Þegar einstaklingur kaupir fyrirtæki þá gefum við okkur að einstaklingurinn vilji gróða, sem er eðlilegt því hann þarf að hafa tekjur til að borga starfsmönnum laun og jafnframt vill rekstraraðilinn fá peninga á milli handanna. Þá komum við að því að heilbrigðiskerfið á Íslandi kostar um það bil 100 milljarða á ári. Er til sá einstaklingur sem er tilbúinn til að tapa 100 milljörðum á ári? Málið er að þegar einstaklingur byrjar að reka mikilvæga einingu í heilbrigðiskerfinu, til dæmis sjúkrahús, þá gerir hann hvað? Hann þarf að snúa við þessum  svakalega halla í hagnað. Einstaklingurinn mun þá skera niður á sem flestum sviðum, til að tryggja gróðann. Einnig mun verðskrá sjúkrahússins hækka upp úr öllu valdi, svo að gróðinn sé örugglega tryggður, og fólk sem sækir spítalann þarf að greiða fyrir meðferðina alla úr eigin vasa.

En er það ekki gott að sá sem á peninga fær forgang í mikilvægar aðgerðir? Er það ekki fullkomlega eðlilegt? Svo er alls ekki. Hvenær urðu peningar mikilvægari heldur en heilsa fólks eða jafnvel mikilvægari en mannslíf? Peningar veita engum meiri rétt til þess að vera meðhöndlaðir á sjúrahúsum. Peningar eru ekki og eiga ekki að vera lykillinn að öllum lífsins gæðum. Við erum öll manneskjur, við höfum öll jafnan rétt og með því að  hafa heilbrigðiskerfið, sem ég tók sem dæmi, undir handleiðslu ríkisins þá erum við að tryggja jafnan rétt.

Einkavæðing var aðal skrautyrðið á ,,gróðærisárunum”. Það mátti alls ekki ríkisvæða neitt, það var stranglega bannað og stórhættulegt. Voru þá grunnstoðir velferðakerfisins að standa sig? Sumir töldu að læknisþjónusta væri slök og hétu því að einkavæða kerfið. En skoðum málið frá öðru sjónarhorni. Var þetta ekki eftir allt saman enn einn pólitískur leikur Sjálfstæðisflokksins, sem var þá leiðandi í ríkisstjórn, að fjársvelta ríkisstofnanir svo að töfralausnin væri þá einkavæðing? Fram hafa komið upplýsingar um það að framámenn í Sjálfstæðisflokknum hafi átt hluti í fyrirtækjum sem ætluðu að hefja einkarekstur, eða höfðu tengsl við fyrirtæki, sem ætlðuð að hefja einkarekstur í heilbrigðiskerfinu á meðan það var fjársvelt. Nota bene, þetta er sami flokkurinn sem tók við milljóna mútum frá stórfyrirtækjum, er hægt að treysta þessum sama aðila og ætlaði að einkavæða allt sem hugsast gæti?

Við munum öll eftir einkavæðingu bankanna þar sem góðvinir fyrrverandi ríkisstjórnar keyptu þá og stjórnuðu þeim glæsilega. Aðilarnir græddu stórfé og fengu peningana beint í vasann sem síðan var hent í skúffufyrirtæki á Tortola. En þegar öllu var á botninn hvolft þá var bönkunum ekki stjórnað svo glæsilega eins og við áttum að halda. Vinstrihreyfingin - grænt framboð benti á það ótal sinnum, að eitthvað væri varhugavert við rekstur gömlu bankanna, en eyru ríkisstjórnarinnar voru lokuð. Við vitum öll hverjar afleiðingarnar urðu vegna einkavæðingar bankanna, sem Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru höfundar að. Hér hrundi heilt fjármálakerfi og löggjöfin sem sömu flokkar skyldu eftir sig skylda okkur almenning til að borga.

Því er það kaldhæðnislegt að heyra hvernig sjálfstæðismenn tala á móti núverandi ríkisstjórn. Málin sem núverandi ríkisstjórn er að taka á eru afleiðingar skelfilegrar stjórnunnar Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn er einmitt flokkurinn sem þiggur mútur frá stórfyrirtækjum, flokkurinn sem sveik þjóð sína með því að samþykkja að fara í stríð við Írak, þvert á vilja þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er flokkurinn sem sveik þjóð sína enn og aftur með því að hafa ekki eftirlit með útrásarfyrirtækjunum á góðærisárunum. Því miður er þetta líka flokkurinn sem mælist með mesta fylgi á landsvísu í skoðanakönnunum.

Hlustum ekki á endalausar dylgjur stjórnarandstöðunnar með einmitt Sjálfstæðisflokk í fararbroddi. Það er óhagstætt að leggja í vana sinn að taka afstöðu með ómálefnalegum ummælum og umræðum. Við skulum ekki einu sinni hugsa um Sjálfstæðisflokkinn lengur því hann ætti að vera löngu búinn að vera. Nú þurfum við að sameinast á bak við vinstristjórnina til þess að endurmóta landið okkar. Það er betra að treysta þeim sem laga hlutina heldur en að treysta þeim sem hlutina eyðilögðu.


Daníel Haukur Arnarsson
höfundur situr í stjórn Ungra vinstri grænna

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica