Ung vinstri græn
Pistlar

1.2.2010 Vésteinn Valgarðsson

Frítt í strætó!

vesteinn

Ég tek gjarnan strætó þegar ég þarf að komast leiðar minnar. Þótt leiðakerfi og tímatöflur séu ekki fullkomin, þá er samt þægilegt að ferðast með strætó. Það er til dæmis þægilegt að geta lesið bók þegar maður þyrfti annars að hafa augun á veginum. Það er líka þægilegt að þurfa ekki að hugsa um að finna bílastæði, hvort nóg bensín sé á tankinum eða hvort bíllinn sé skoðaður. Þá er allt í lagi að taka strætó þótt maður hafi fengið sér neðan í því, og maður þarf ekki að spenna sætisbelti. Hin umtalsverðu þægindi eru samt ekki ástæðan fyrir því að við skulum hafa strætósamgöngur.

Ástæðan er auðvitað að fólk á að geta komist milli staða án þess að vera háð einkabíl. Það eru mannréttindi. Sumir mega ekki aka bíl, aðrir eiga ekki bíl og loks er umferð einkabíla miklu meiri nú þegar en nokkur hefur gott af, nema kannski olíu- og bílasalar. Það væri því til mikilla bóta fyrir samfélagið ef fargjöld í strætisvagna yrðu lögð niður. Strætó er einn af innviðum borgarsamfélagsins og á að vera rekinn sem þjónusta við borgarbúa, ekki í hagnaðarskyni. Hagnaðarkrafa af Strætó er jafn gáfuleg og hagnaðarkrafa af grunnskóla. Reykjavíkurborg og nágrannasveitarfélög verja óhemjumiklum fjármunum í byggingu og viðhald umferðarmannvirkja. Ef hluta af þessum fjármunum væri varið í rekstur strætisvagnanna í staðinn, á móti niðurfellingu fargjalda, þá mundi fjöldi fólks frekar taka strætó og að sama skapi mundi umferðin minnka og þar með þörfin fyrir byggingu og viðhald umferðarmannvirkja. Hvað ætli megi keyra marga strætisvagna fyrir peningana sem ein mislæg gatnamót kosta?

Beinn kostnaður borgarinnar af umferðinni er aðeins einn þáttur af mörgum. Margt fleira mundi sparast í leiðinni: Minni umferð þýðir t.d. færri umferðarslys og minna tjón á ökutækjum og þar með minni samfélagslegan kostnað af tryggingum. Hún þýðir líka minni eyðslu á bensíni og olíu og auðvitað minni mengun, bæði útblástur og annað svifryk. Niðurfelling fargjalda í strætó er í senn félagsmál, umhverfismál og öryggismál. Svo er hún í leiðinni þægindamál. Ég gef kost á mér í 2.-3. sæti á lista Vinstri-grænna í Reykjavík. Ef ég fæ stuðning flokksmanna og kjósenda til þess, munu gjaldfrjálsar strætósamgöngur verða eitt af mínum helstu baráttumálum. Takið strætó, kjósið mig!

Vésteinn Valgarðsson
höfundur býður sig fram í 2.-3. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík 6. febrúar næstkomandi

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica