Ung vinstri græn
Pistlar

27.1.2010 Þórunn Rögnvaldsdóttir

Múrinn í Palestínu

Þórunn Rögnvaldsdóttir

Í júní 2002 var byrjað að byggja múr á Vesturbakkanum í Palestínu. Múr til að aðskilja, einangra, ógna og kúga. Rúmlega helmingur múrsins hefur nú verið reistur, en fullbyggður mun múrinn verða 730 km á lengd. Múrinn er ekki reistur á landamærum Ísraels og Palestínu, hann er reistur á herteknu palestínsku landi á Vesturbakkanum og ísraelskir hermenn byggja hann yfir hvað sem er án þess að virða eignarrétt Palestínumanna, hvað þá þarfir þeirra og rétt til að lifa mannsæmandi lífi. Ekki er nóg með að þeir hafi rifið niður hús, búðir og bæi, og farið yfir ræktarland palestínskra bænda og eyðilagt það. Þeir geta og hafa einnig meinað fólki að komast til vinnu,  í skóla, á sjúkrahús og á aðrar nauðsynlegar stofnanir, þar sem að fólkið þarf að fara í gegnumsérstök hlið sem ísraelskir hermenn stjórna alfarið umferð um.

Múrinn er ekkert nema risastórt mannréttindabrot gegn palestínsku þjóðinni. Bygging múrsins stríðir gegn Genfar-sáttmálanum og Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur úrskurðað að hætta eigi byggingu hans tafarlaust og rífa eigi niður þann hluta sem reistur hefur verið. Þrátt fyrir það eru engin merki um að Ísraelsmenn hafi í hyggju að hætta bygggingu hans, hvað þá að rífa múrinn niður.

Hversu lengi eiga Palestínumenn að líða fyrir heigulshátt alþjóðasamfélagsins? Þó að Alþjóðadómstóllinn hafi úrskurðað um málið hefur þeim úrskurði ekki verið fylgt eftir og Ísraelsmenn halda áfram uppteknum hætti með stuðningi Bandaríkjanna. Ríki heimsins hafa brugðist palestínska fólkinu með því að líta framhjá þeim mannréttindabrotum sem eru framin af Ísraelum í skjóli Bandaríkjastjórnar. Það er fyrir löngu komið nóg af því að umheimurinn hunsi ástandið í Palestínu. Ég skora á íslensk stjórnvöld að sýna að þau hafi ennþá bein í nefinu og snefil af réttlætiskennd, og geri það sem þau geta til að stuðla að því að bygging múrsins verði stöðvuð. Einnig að þau geri það sem hefði átt að gerast fyrir löngu, viðurkenni sjálfstæði Palestínu og fordæmi mannréttindabrot Ísraelsríkis gegn palestínsku þjóðinni.

Þórunn Rögnvaldsdóttir
höfundur er gjaldkeri Ungra vinstri grænna

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica