Ung vinstri græn
Pistlar

26.1.2010 Ísleifur Egill Hjaltason

Ríkisrekið trúfélag er tímaskekkja

Ísleifur Egill Hjaltason

Af hverju þrífast trúarbrögð hér á landi sem njóta þeirra forréttinda að vera undir verndarvæng ríkisins? Ástæðan er ekki  sú að lútherska kirkjan þótti svo frábær að nauðsynlegt þurfti að skipta henni út fyrir  þá kaþólsku. Ástæðan fyrir siðaskiptunum hér á landi er einföld: Danski kóngurinn fékk í textum Marteins Lúthers tilvalið tækifæri til að sölsa undir sig eignir kaþólsku kirkjunnar hér á landi og hafa algjöra stjórn yfir trúarlífi þegna sinna. Við tók áralöng barátta milli þessara deilda kristninnar með tilheyrandi drápum og aftökum. Þetta fyrirkomulag hafa Íslendingar svo erft í gegnum árhundruðin.

Á seinasta landsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs tókst okkur í ungliðahreyfingunni að fá samþykkta ályktun um að stefnt skuli að aðskilnaði ríkis og kirkju. Þetta er löngu tímabær aðgerð sem meirihluti þjóðarinnar styður og hefur það verið svo í áraraðir. Þetta snýst ekki um árás á eina trú eða aðra heldur að virða stjórnarskrá lýðveldisins. Þar kveður skýrt á um að ekki megi mismuna fólki eftir ólíkum lífsskoðunum, þar á meðal trú. Það er því frekar augljóst að þegar heil kirkja er hluti af ríkinu með tilheyrandi sérmeðferð er ekki verið að stuðla að hlutleysi stjórnvalda, þvert á móti.

Ein afleiðing þess að hafa þjóðkirkju hér á landi er kristinfræðikennsla í grunnskólum. Það er ótrúlegt að á 21. öldinni sé kennsla sem eigi að kynna fyrir nemendum trúarbrögð heimsins lítið annað en hreint og beint trúboð. Þessi kennsla er svo brotin reglulega upp með kirkjuheimsóknum og messuhaldi sem dæmi eru um að nemendur hafi ekki val um að sleppa. Þó að margt hafi áunnist í þessum efnum þarf að tryggja hlutleysi grunnskóla landsins og er aðskilnaður ríkis og kirkju mikilvægt skref í þá átt. Með þessu er ekki verið að troða á rétti eins eða neins. Ef foreldrar vilja að börnin sín fræðist meira um einstök trúarbrögð geta þau  leitað tilviðeigandi trúfélags þar sem líklegast verður tekið vel á móti þeim. Það er hins vegar ótækt að stunda trúboð í skólum eins og gert er í dag.

Aðskilnaður ríkis og kirkju er mannréttindamál sem ganga verður í eins fljótt og kostur er. Heppilegast væri að láta þjóðina kjósa um málið og taka svo ákvörðun í framhaldi af því.

Senda grein

Athugasemdir (2)

  1. Davíð skrifar:

    Heyr heyr! Löngu tímabært

    27.1.2010, kl. 15:59 | #

  2. ashtonheather skrifar:

    buy viagra szlp propecia and buy 531532 does ambien affect depression fkj ultram online unprescibed emtv buy cialis 5214 ultram 8-D doxycycline 102808

    28.5.2010, kl. 1:55 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica