Ung vinstri græn
Pistlar

18.1.2010 Þórir Ingvarsson

Spyrjum þjóðina fleiri spurninga

Þórir Ingvarsson skrifar um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem er framundan

Þórir Ingvarsson

Samkvæmt nýjum lögum á að fara fram atkvæðagreiðsla um ICESAVE frumvarpið á vordögum 2010. Icesave hefur lengi verið þrætuepli bæði á þingi og í fjölmiðlum. Skemmst er að minnast þess að á þingi í lok nóvember 2008 mælti núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins fyrir drögum að frumvarpi að lausn þessa máls. Þá voru vaxtakjörin sem mikið er rifist um í þeim samningum mun verri en í núverandi lögum.

Lýðræði er að mínu mati það lang mikilvægasta í íslenskri stjórnsýslu. Hvernig væri að nýta þetta einstaka tækifæri og kjósa um fleiri mál en ICESAVE lögin sem umdeild eru? Það kostar um 160 milljónir króna að halda þessar kosningar og er það nánast skylda íslenskra yfirvalda að spyrja um fleira en þessa samninga. Til dæmis mætti þar bæta inn spurningu um fyrningarleið stjórnvalda í sjávarútvegi og spurningu um hvort fólk vildi aðskilja ríki og kirkju. Ef svo skyldi fara að ICESAVE samningarnir og fyrningarleiðin yrði felld gæti ríkisstjórn Íslands ákveðið að reyna að ganga við Breta og Hollendinga, og fallið frá kröfum sýnum við fyrningarleiðina. Með samþykkt fyrningarleiðarinnar gæti ríkisstjórnin aftur á móti ráðist á fullum krafti í að koma henni til framkvæmda með fullu umboði þjóðarinnar.

Ef af þjóðaratkvæðagreiðslu verður, í fyrsta sinn í lýðveldissögunni, sé ég ekkert því til fyrirstöðu að spyrja þjóna fleiri spurninga en þá sem varðar ICESAVE samningana. Þá gætu menn hætt að eyða dýrmætum tíma í að rífast um umdeild verkefni og framfylgt vilja þjóðarinnar í þeim málum sem fyrir liggja.

Þórir Ingvarsson
höfundur er meðstjórnandi í stjórn Ungra vinstri grænna

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. leonwesten skrifar:

    xanax 8-( phentermine 278 accutane %P how to order doxycycline 3048 valium 8] xanax without a prescription 95143

    25.5.2010, kl. 1:00 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica