Ung vinstri græn
Pistlar

9.11.2009 Elín Sigurðardóttir

Að lifa með reisn

- mikilvægi notendastýrðrar heimaþjónustu.

Elín Sigurðardóttir

Nú er lag að umbylta málefnum þeirra sem fá heimaþjónustu - hugsa þjónustuna frá grunni og skoða forsendur hennar upp á nýtt. Núverandi fyrirkomulag heimaþjónustu og heimahjúkrunar er of flókið og á hendi of margra. Einstaklingar njóta oftar en ekki þjónustu tveggja eða fleiri aðila á heimili sínu. Sveitarfélög sjá um heimaþjónustu á borð við þrif og félagslega liðveislu. Heilsugæslan sér hins vegar um heimahjúkrun – sem skiptist aftur niður milli ólíkra aðila. Heimahjúkrun og heimageðhjúkrun er til dæmis ekki það sama. Aukin einkavæðing þjónustunnar, sem einkum hefur orðið á höfuðborgarsvæðinu, hefur einnig aukið flækjustigið og enn fleiri „aðilar“ hafa komið inn á þann „markað“ að hugsa um fólk á heimilum sínum.

Þær kröfur gerast sífellt háværari að sá sem noti heimaþjónustu eigi að hafa meira um hana að segja og taka virkari þátt í ferlinu. Einnig hefur komið fram hjá notendum þjónustu að þeir vilja geta sótt þjónustuna á einn og sama stað. Það á að vera auðvelt mál og sjálfsagt að einfalda aðgengi að þjónustunni og gefa notendum hennar aukin tækifæri til að finna sér úrlausn við hæfi. Það að búa heima á ekki að fela í sér aukið álag á fjölskyldumeðlimi og aðstandendur þeirra sem nýta þjónustuna. Þó svo að öflugt heilbrigðiskerfi sem rekið er á samfélagslegum grunni sé nauðsynleg forsenda velferðarsamfélagsins, eru það líka sjálfsögð mannréttindi fólks að fá að lifa heima með reisn eins lengi og kostur er. Því er brýnt að byggja upp öfluga notendastýrða heimaþjónustu á samfélagslegum grunni þar sem aðgengi allra er tryggt.

Elín Sigurðardóttir
höfundur er meðstjórnandi í stjórn Ungra vinstri grænna


Greinin birtist á Smugunni 9. nóvember 2009

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica