Landbúnaður í kreppu
Í fréttablaðinu 12.október birtist frétt um uggvænlega stöðu garðyrkjubænda á Íslandi sem hafa þurft að skerða starfsemi sína verulega vegna mikils orkukostnaðar. Nú er staðan jafnvel enn uggvænlegri vegna fyrirhugaðra orkuskatta, en orkan er fyrir helsti útgjaldaliður garðyrkjubænda. Því eru garðyrkjubændur uggandi og óttast um afkomu sína þó svo að eitthvað hafi verið nefnt um þeir verði undanþegnir skattinum. Það verður að styðja við bakið á bændum núna í kreppunni, þeir mega ekki gleymast því að þeir eru samfélaginu mjög mikilvægir.
Líkt og aðrir landsmenn skuldsettu margir bændur sig og lánin voru gjarnan mikið hærri en gengur og gerist hjá öðrum einstaklingum, þau voru notuð til að byggja upp ný fjós, endurnýja vélar o.sv.f. Því eru þeir sem að tóku mikil lán ekki vel staddir í dag þrátt fyrir að það séu ágætis rekstrarskilyrði fyrir marga bændur núna. Mikilvægi bændastéttarinnar felst meðal annars í því að hún sér um matvælaframleiðslu og heldur uppi framleiðslu innan lands. Ef mikil skerðing yrði á starfsemi bænda þá þýddi það meiri innflutning og þar af leiðandi meiri útgjöld auk þess sem að fjöldi fólks missti vinnuna. Það síðasta sem við þurfum er að fara að flytja inn matvæli sem hægt er að framleiða hér á landi án mikilla vandkvæða. Við ættum heldur að reyna að efla útlfluting á matvælum, þau eru með afbrigðum góð og það er ekki hægt að segja annað en að það hlýtur að vera hagkvæmt fyrir erlenda aðila að versla við Ísland núna.
Útgjöld bænda hafa hækkað verulega síðastliðin tvö ár, sem dæmi má nefna að áburður hefur hækkað um allt að 120 % í verði síðastliðin tvö ár. Einnig hefur fóðurbætir hækkað mikið í verði og þetta eru mjög stórir útgjaldsliðir hjá bændum. Svo má nefna aftur orkukostnaðinn fyrir garðyrkjubændur sem að hefur snarhækkað og mun hugsanlega hækka meira í framtíðinni.
Því vil ég hvetja landbúnaðarráðherra til að gera sitt besta við að sinna málefnum bænda, eins og að sjá til þess að garðyrkjubændur verði undanþegnir orkuskattinum. Að sjá til þess að enginn bóndi þurfi að hætta starfsemi sinni óviljugur.
Þórunn Rögnvaldsdóttir
höfundur er gjaldkeri Ungra vinstri grænna
Athugasemdir (1)
-
fatafreak skrifar:
valium 10mg 8O accutane buy %]]] long term effects of xanax 843970 ultram 74694 acomplia and canadian pharmacies acbevu valium 580 viagra \=[


Skrifa athugasemd