Ung vinstri græn
Pistlar

10.10.2009 Tómas Gabríel Benjamin

Þegar á móti blæs

Tómas Gabríel Benjamín

Talið er að einn af hverjum fjórum einstaklingum eigi einhvern tímann á ævinni við geðræn vandamál að stríða. Það er mjög algengt að fólk hugsi með sér að það þurfi ekki að hafa áhyggjur af þessu og telur sig ekki eiga eftir að lenda í slíkum vanda. En hvað ef það kemur fyrir einhvern sem við þekkjum? Einhvern sem er okkur kær? Hvað ef mamma greinist með þunglyndi? Makinn með kvíðaröskun? Barnið með geðklofa? Það er mikilvægt að við stöndum saman og styðjum þá sem glíma við geðræn vandamál. Jafnvel þótt við kunnum að sleppa við þau þá sjálf eru mjög miklar líkur á því að einhver sem stendur okkur nærri sé ekki jafn lánsamur.

Alþjóðlegur dagur geðheilsu er haldinn 10. október til að vekja athygli á geðheilbrigðismálum. Á fyrri árum voru geðsjúkir útskúfaðir af samfélaginu og þurftu að sæta hrottalegum niðurlægingum og smánun. Enn þann dag í dag verða þeir fyrir fordómum frá samfélaginu. Eitt sumarið starfaði ég sem sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum og vann mikið með geðfötluðum. Þar kynntist ég mikið af hjartahlýju fólki og fékk góða innsýn í heim öryrkja. Margir bjuggu við döpur skilirði, áttu varla efni á nauðsynjavörum og þá var árið 2007! Ég get ekki búist við öðru en að kreppan hafi sett flesta sem ég kynntist í ennþá verri stöðu.

Það verður að teljast afar líklegt að mikið muni bera á geðrænum vandamálum þegar ástandið í þjóðfélaginu er slæmt og mikið álag er á fólki. Óvissan um það hvort fólk muni hafa þak yfir höfðuðinu eftir mánaðamótin eða hvort það muni missa vinnuna getur haft mikið að segja. Ein lexía sem þeir geðsjúku í Rauða Krossinum voru með á hreinu var að jákvæðni sé eina hugarfarið komi manni úr stormasömum sjó. Fyrst þetta góða fólk gat á köflum verið jákvætt meðan það þurfti að glíma við mikla erfiðleika þetta tiltekna sumar þá ættum við hin að geta gert hið sama þegar á móti blæs.

Okkur ber sem borgarar að styðja þá sem ganga í gegnum erfiðleika, hvort sem það glímir við djöfla að innan eða utan, og reyna að sýna þeim sem illa standa alúð og umhyggju. Það eru jú litlu hlutirnir sem gera dimman dag bjartan.

Tómas Gabríel Benjamin
höfundur er ritari Ungra vinstri grænna

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica