Ung vinstri græn
Pistlar

8.10.2009 Guðrún Axfjörð Elínardóttir & Jan Eric Jessen

Timburmenn nýfrjálshyggjuveislunnar

Guðrún Axfjörð Elínardóttir

 

Þrátt fyrir að nú sé liðið heilt ár frá því nýfrjálshyggjuveislunni miklu lauk, voru timburmenn hagræðingar í ríkisrekstri ekki kynntir til sögunnar fyrr en í síðustu viku. Til að taka með festu á þeim geigvænlega fjárlagahalla sem í stefnir á næstu árum hefur Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, kynnt blóðugustu hagræðingaraðgerðir sem íslenska ríkið hefur nokkurn tímann þurft að ganga í gegnum. Fjárlögin fyrir næsta ár gera ráð fyrir niðurskurði og skattahækkunum sem samanlagt nema um 115 milljörðum íslenskra króna. Það væri forvitnilegt að sjá hvernig helstu gestgjöfum nýfrjálshyggjuveislunnar yrði við, þyrftu þeir taka til eftir partýið sjálfir.

 

Sú síbylja yfirlýsinga formanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem dunið hafa í eyrum landsmanna upp á síðkastið, gefa til kynna að ekki sé að fullu runnið af þeim eftir veisluna.  Yfirlýsingarnar eru nefnilega flestar, ef ekki allar, á þá lund að í stað þess að fara blandaða leið við nauðsynlega hagræðingu í ríkisfjármálum, eigi ekki að ganga jafn langt í skattahækkunum og núverandi ríkisstjórn þykir þurfa. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur m.a.s. gengið svo langt að lýsa því yfir að það þurfi alls ekkert að hækka skatta. Þessi ummæli geta væntanlega ekki þýtt annað en að væri hann sjálfur í hlutverki fjármálaráðherra, myndi hann beita niðurskurðarhnífnum, eingöngu, til að ná settu marki.

 

Í ljósi þessa má nefna að ef hagræðingin yrði eingöngu í formi niðurskurðar, þyrfti að skera niður um 115 milljarða til að ná sama árangri og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Það myndi samsvara því að íslenska heilbrigðiskerfið yrði lagt niður í heild sinni og enn stæðu 2 milljarðar út af.

 

Það er mjög gott að vita til þess að það fólk sem leiðir þessar hagræðingaraðgerðir hefur ávallt barist fyrir öflugu velferðarkerfi á Íslandi en eru ekki einstaklingar eða hópar sem líta á heilbrigðis- og menntakerfið sem óplægða markaðsakra. Þau sem þetta rita gera sér grein fyrir því að ríkisstjórnin gengur nú í verk sem ekki eru vinsæl. Við getum þó huggað okkur við það að þessi ríkisstjórn ætlar sér ekki, ólíkt forverum sínum, að bjóða í brjálað partý á kostnað almennings í landinu.

 

Jan Eric Jessen, formaður Ungra vinstri grænna
Guðrún Axfjörð Elínardóttir, varaformaður Ungra vinstri grænna

Senda grein

Athugasemdir (1)

  1. hoopacat skrifar:

    acomplia 16743 how to get prescription accutane azx cialis >:-]] buy deine nachricht site tramadol 80049 generic levitra 17848 buy doxycycline online hhrras acomplia and canadian pharmacies 104619

    29.5.2010, kl. 0:46 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica