Ung vinstri græn
Pistlar

1.10.2009 Andrés Ingi Jónsson

Ekki okra á örygginu

Andrés Ingi Jónsson

Á alþjóðlega getnaðarvarnadeginum sem haldinn var fyrr í vikunni bárust Íslendingum slæm tíðindi. Hrun hefur orðið í sölu smokka síðastliðið ár samhliða því að verð þeirra hefur tvöfaldast. Sömu sögu er að segja af öðrum getnaðarvörnum. Þetta er heilbrigðisvandamál og félagslegt mein sem verður að bregðast við. Þetta er vandamál sem snertir ungt fólk sérstaklega mikið. Þó að nú sé kreppa mega stjórnvöld ekki skorast undan því að tryggja aðgengi að ódýrum og öruggum getnaðarvörnum.


Árlega smitast þúsundir af kynsjúkdómum hér á landi. Smokkurinn er eina vörnin gegn flestum þessara sjúkdóma. Reikniformúlan er einföld. Ódýrir smokkar eru frekar notaðir en dýrir. Ódýrir smokkar verja fólk fyrir sjúkdómum. Dýrari smokkar þýða að fleiri veikjast.


Viljum við að pyngjan ráði því hvort fólk sé heilbrigt?


Getnaðarvarnir gera fólki kleift að stjórna barneignum sínum, og hafa þannig verið mikilvægur þáttur í aukinni aðkomu kvenna að öllum sviðum þjóðfélagsins undanfarna áratugi - hvort sem er á vinnumarkaði, í menntakerfinu eða innan stjórnmálanna. Skert aðgengi að getnaðarvörnum hefur því í för með sér félagslegt óréttlæti, þar sem efnahagur fer að stýra því um of hversu mikinn þátt konur geta tekið í samfélaginu. Nóg er óréttlætið fyrir, þar sem ábyrgðinni á getnaðarvörnum er oftast að fullu velt yfir á konur.


Óttinn við svínaflensuna varð til þess að bóluefni fyrir 380 milljónir króna var pantað. Bóluefni sem alls óvíst er að virki. Smokkurinn er hins vegar eina vörnin gegn klamydíu, sárasótt, lekanda og fleiri stórhættulegum sjúkdómum. Hvers vegna stökkva heilbrigðisyfirvöld ekki upp til handa og fóta til að sporna við þeim, líkt og þau gera vegna svínaflensunnar?
Stjórnvöld verða að bregðast við þessu ekki seinna en strax.

 

Andrés Ingi Jónsson
höfundur situr í stjórn Ungra vinstri grænna

 

Senda grein

Athugasemdir (3)

  1. zexland skrifar:

    effects of ambien and prozac 8-]] order valium no \=PPP mp3musics >:] cialis 587 accutane purchase gzbjhx

    26.5.2010, kl. 1:19 | #

  2. MeSpanish skrifar:

    phentermine nqhlc xanax %-PP buy prednisone on-line 8[ acomplia 8-[ doxycycline 65246 order prednisone online 8[

    2.6.2010, kl. 13:56 | #

  3. happyxix skrifar:

    accutane 70486 cialis 94945 doxycycline 11834 phentermine ingredients 8386 doxycycline order online 5234

    3.6.2010, kl. 6:29 | #

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)

Ung vinstri græn þiggja með þökkum athugasemdir við alla pistla en óska þess að athugasemdir séu málefnalegar. Allar athugsemdir eru á ábyrgð höfundur en Ung vinstri græn áskilja sér þó rétt til þess að fjarlægja athugasemdir sem þau telja ekki hæfar til birtingar.



Leita á vefnum



Eldri pistlar


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica