Ung vinstri græn
Pistlar

24.9.2009 Jan Eric Jessen

Peppgrein fyrir landsfund

jan-eric-jessen

 

Ung vinstri græn er ungliðahreyfing Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, umræðu- og samstarfsvettvangur þeirra félagsmanna í VG sem eru 30 ára og yngri. Þrátt fyrir að Ung vinstri græn berjist í meginatriðum fyrir sömu gildum og móðurflokkurinn, hafa Ung vinstri græn sjálfstæða stefnu sem samþykkt er af landsfundi félagsins. Áherslur Ungra vinstri grænna hafa þannig á ýmsum sviðum verið frábrugðnar áherslum VG. Sú grundvallarstefna sem starf Ungra vinstri grænna byggist á felst í baráttu fyrir félagslegu réttlæti og velferð, náttúruvernd og hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar, raunverulegu kvenfrelsi og sjálfstæðri utanríkisstefnu sem miðar að friðsamlegri sambúð þjóða.

 

Mikið líf hefur einkennt starfsemi hreyfingarinnar að undanförnu. Á síðasta starfsári voru til að mynda haldnir 27 opnir fundir og viðburðir, gefnar út 15 ályktanir, gefin út málgögn, opnuð ný heimasíða, birtar á 6. tug blaðagreina og þúsundir barmmerkja framleidd. Áhrif Ungra vinstri grænna innan VG hafa aukist í samræmi við eflingu starfs hreyfingarinnar. Sem dæmi má nefna að á síðasta landsfundi VG voru allar ályktanir og lagabreytingatillögur Ungra vinstri grænna samþykktar, m.a. ályktun um að útiloka stjórnarsamstarf VG og Sjálfstæðisflokksins eftir síðustu kosningar og önnur um að aðskilja beri ríkisvald og þjóðkirkju, en það hefur verið baráttumál Ungra vinstri grænna frá upphafi. 

 

Um næstu helgi fer tíundi landsfundur Ungra vinstri grænna fram í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli. Landsfundur er árlegur liður í starfi Ungra vinstri grænna; þar móta félagsmenn stefnu og áherslur hreyfingarinnar, ræða um ýmis þjóðfélagsmál og kjósa sér stjórn fyrir næsta starfsár svo fátt eitt sé nefnt.

 

Það er afar brýnt að ungt fólk taki þátt í þjóðfélagsumræðunni og láti skoðanir sínar í ljós. Með því móti hefur það áhrif á samfélagið okkar. Þannig hjálpar það til við að reisa nýtt Ísland úr rústum þeirrar nýfrjálshyggjustefnu sem hrundi fyrir rétt tæpu ári síðan. Þannig er best tryggt að hagur ungs fólks sé hafður að leiðarljósi við mótum þessa nýja Íslands. Nú er þörf fyrir nýjar hugmyndir og þátttöku allra við uppbygginguna sem framundan er.

 

Það eina sem þarf til að hefja þátttöku í stjórnmálastarfi er skoðun. Ung vinstri græn taka öllum nýjum þátttakendum í starfi hreyfingarinnar fagnandi og vonast til þess að sem flestir mæti á landsfundinn um helgina.

 

Jan Eric Jessen
höfundur er varaformaður Ungra vinstri grænna

 

Upplýsingar um landsfundinn og skráning

Senda grein


Leita á vefnum






 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica